Benitez: Chelsea átti skilið að vinna Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. apríl 2009 21:47 Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool. Nordic Photos / Getty Images
Rafael Benitez, stjóri Liverpool, sagði Chelsea hafa verðskuldað sigurinn í leik liðanna í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Chelsea vann leikinn, 3-1, eftir að Liverpool komst 1-0 yfir. „Mér fannst við byrja virkilega vel í leiknum. En svo vorum við að spila illa og gáfum boltann mikið frá okkur. Við töpuðum fyrir góðu liði vegna þess að þeir spiluðu vel en við spiluðum undir getu," sagði Benitez við enska fjölmiðla eftir leik. Liverpool fékk tvö mörk á sig úr föstum leikatriðum. „Stundum fær maður á sig mark þegar það er maður gegn manni. Þeir voru sterkir í loftinu og við fengum mörk á okkur." Steven Gerrard var tekinn úr umferð í leiknum af Michael Essien en Benitez sagði að það hefði ekki haft úrslitaáhrif í leiknum. „Við sáum í hvað stefndi strax á fyrstu mínútu og við vorum búnir að ræða það. En aðalmálið er að við spiluðum illa. Þeir skoruðu úr föstum leikatriðum en mörkin hefðu þess vegna getað komið úr opnu spili." Hann viðurkennir að það verði erfitt að komast í undanúrslitin eftir úrslitin í kvöld en neitaði þó að gefast upp. „Það er allt hægt í fótbolta. Við verðum að spila vel og skora þrjú mörk. Við verðum að reyna að spila mjög vel. Það verður erfitt vegna þess að Chelsea er með mjög gott lið."
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Betra liðið tapaði” „Ég er ríkmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Styrmir nýr formaður hjá Val Verður einn sá dýrasti í sögu KR HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Messi fer á sjötta heimsmeistaramótið Snýr aftur heim til Víkinga Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Írar unnu góðan sigur „Skítugur blettur á íþróttinni okkar“ Allegri ráðinn þjálfari Napoli Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Jón Daði utan hóps af persónulegum ástæðum Sjá meira