Sport

Poyet hefur áhuga á Swansea

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gus Poyet.
Gus Poyet. Nordic Photos / Getty Images
Gus Poyet hefur sagt að hann hafi áhuga á að taka við starfi Roberto Martinez hjá enska B-deildarliðinu Swansea.

Martinez tók nýverið við Wigan í ensku úrvalsdeildinni en undir stjórn hans náði Swansea góðum árangri síðustu tvö tímabil. Puyet þykir nú líklegastur af veðbönkum til að taka að sér starfið.

Poyet hefur undanfarið starfað sem aðstoðarknattspyrnustjóri hjá Tottenham, Leeds og Swindon.

„Ég hefði mikinn áhuga á starfinu," sagði Poyet í samtali við enska fjölmiðla. „Þetta væri frábært tækifæri fyrir mig."

Poyet hefur þegar hitt forráðamenn Swansea að máli, rétt eins og þeir Gary Speed og Aidy Boothroyd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×