Dönum vel við Stefán Mána 18. september 2009 05:00 Gyldendal hefur tryggt sér útgáfuréttinn að bókinni Ódáðahraun eftir Stefán Mána. Fréttablaðið/stefán „
Ég veit ekkert af hverju Dönum er svona vel við mig, þeir eru bara yndislegir og það fer bara vel á með okkur,“ segir Stefán Máni rithöfundur. Danskir unnendur glæpasagna virðast hafa bundist íslenska rithöfundinum Stefáni Mána sérstökum tryggðarböndum því danska forlagið Gyldendal hefur nú samið við rithöfundinn um útgáfu á bókinni Ódáðahraun sem kom út í fyrra. Gyldendal gaf einnig út spennusöguna Skipið sem vakti mikla athygli og fékk prýðilega dóma í dönskum fjölmiðlum. Gyldendal ákvað í kjölfarið á velgengni Skipsins að gefa út hljóðbók, slík var eftirsóknin. „Ég veit ekkert hver er að lesa þetta. Kannski sem betur fer. Því einu dönsku leikararnir sem ég þekki eru Casper Christiansen og Frank Kvam úr Klovn. Og það hefði kannski ekkert komið neitt sérstaklega vel út.“ Stefán tekur þátt í hinu árlega jólabókaflóði sem nú er skammt undan og er bara að bíða eftir því að bókin fari í prentun. Um er að ræða spennusögu sem segir þó hvorki af glæpamanni né undirheimum. „Nei, hún heitir Hyldýpið, er svona reykvísk saga, segir frá tvítugum strák frá Ísafirði sem flytur á mölina. Sjónarhornið er venjulegur strákur sem lendir í óvenjulegum hlutum,“ segir Stefán og tekur skýrt fram að Hyldýpið sé laust undan oki hrunsins, það er að segja bankahrunsins.
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Sjá meira