Enski boltinn

Steve Finnan til Portsmouth

Elvar Geir Magnússon skrifar
Finnan er kominn aftur í ensku úrvalsdeildina.
Finnan er kominn aftur í ensku úrvalsdeildina.

Írski bakvörðurinn Steve Finnan, fyrrum leikmaður Liverpool, hefur ákveðið að ganga til liðs við Portsmouth. Mun hann fylla skarð Glen Johnson sem er farinn til Liverpool.

Finnan er 33 ára og var leystur undan samningi sínum við spænska félagið Espanyol aðeins ári eftir að hafa komið til þess frá Liverpool.

Króatíski sóknarmaðurinn Nikola Kalinic er einnig á óskalista Portsmouth. Kalinic er 21. árs og er hugsaður til að fylla skarð Peter Couch sem gekk í raðir Tottenham á mánudag. Kalinic hefur skorað 32 mörk í 59 deildarleikjum fyrir Hajduk Split.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×