Innlent

Landakotsskóli: Breytist fram á síðasta dag

Valur Grettisson skrifar
Landakotsskóli.
Landakotsskóli.

Skólastjóra Landakotsskóla, Fríða Regína Höskuldsdóttir, var sagt upp störfum um helgina. Stjórn skólans tók ákvörðunin á föstudaginn og svo fékk Fríða uppsagnarbréf afhent um helgina. Ekki var óskað eftir því að hún ynni þriggja mánaða uppsagnarfrest. Aðstoðarskólastjórinn, Sigríður Hjálmarsdóttir, tekur við starfinu tímabundið. Stjórnin segir uppsögnin hluta af hagræðingu.

Í Fréttablaðinu í dag er viðtal við Fríðu Regínu þar sem rætt er við hana um sókn nemanda í skólann. Fyrirsögnin er: Breytist fram á síðasta dag.

Þar segist hún ekki hafa orðið við fækkun nemanda í skólanum vegna kreppunnar. Hún hafi þó búist við því að foreldrar myndu skrá börn í auknum mæli í skóla á vegum sveitafélaganna til að sleppa við skólagjöldin. Sú þróun hafi ekki orðið.

„Það var ný stjórn að taka við en fyrri stjórn var þegar komin áleiðis í sparnaðaraðgerðum," segir Páll Baldvin Baldvinsson, blaðamaður en hann situr í stjórn skólans. Hann segir uppsögnina hagræðingu en fyrri stjórn hafði þegar sagt upp fólki og farið í gegnum takmarkanir á starfsmannasamningum.

Fríða Regína tók við skólastjórastarfinu fyrir um fjórum árum en þá gegndi Séra Hjalti Þorkelsson starfinu. Honum sinnaðist við þáverandi stjórn skólans og sagði upp störfum.

Ekki náðist í Fríðu við vinnslu fréttarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×