Umfjöllun: Vonbrigði í Vesturbænum Smári Jökull Jónsson skrifar 17. maí 2009 13:50 KR-ingarnir Atli Jóhannsson og Jónas Guðni Sævarsson fagna marki. Mynd/Daníel
Það voru kjöraðstæður í Vesturbænum þegar KR og Þróttur mættust í Pepsi-deild karla. Leikurinn sjálfur var hins vegar afar líflaus og niðurstaðan markalaust jafntefli sem eru vonbrigði fyrir KR en að sama skapi fín úrslit fyrir Þróttara. KR var með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar en Þróttarar komu inn í leikinn án stiga og með sjálfstraustið í lágmarki eftir 6-0 tap gegn Stjörnunni í síðasta leik. Það var greinilegt að Þróttarar ætluðu sér að leggja alla áherslu á að halda hreinu og spiluðu þeir þéttan varnarleik frá fyrstu mínútu. KR var mun meira með boltann en gekk illa að skapa sér marktækifæri. Prince Rajcomar fékk besta færi fyrri hálfleiks þegar hann slapp í gegnum vörn Þróttar eftir frábæra sendingu Atla Jóhannssonar en Sindri Snær Jensson í marki Þróttar varði vel. Sindri kom inn í byrjunarliðið fyrir þennan leik og átti góðan leik í markinu. Síðari hálfleikur þróaðist á svipaðan hátt og sá fyrri. KR liðið var sterkari aðilinn en spil þeirra gekk ekki vel og marktækifærin voru af skornum skammti. Þróttarar börðust af krafti og höfðu greinilega lagt mikla vinnu í að þétta varnarleik sinn. KR ógnaði nokkrum sinnum, sérstaklega eftir hornspyrnur, en sköpuðu sér engin hættuleg tækifæri. Innkoma Guðmundar Benediktssonar, um miðjan hálfleikinn, blés stuðningsmönnum liðsins byr í brjóst en hann komst lítið í takt við leikinn og á endanum varð niðurstaðan markalaust jafntefli, sem eru vonbrigði fyrir KR en að sama skapi ánægjuleg úrslit fyrir Þróttara enda fyrsta stig sumarsins komið í hús. KR - Þróttur R 0-0KR-völlur. Áhorfendur: 1826 Dómari: Erlendur Eiríksson (6)Skot (á mark): KR 11 (6) - Þróttur R 2 (0)Varin skot: Stefán 0 - Sindri 5 Horn: KR 12 - Þróttur R 4Aukaspyrnur fengnar: KR 13 - Þróttur R 6Rangstöður: KR 2 - Þróttur R 0KR (4-4-2) Stefán Logi Magnússon 5 Skúli Jón Friðgeirsson 4 Bjarni Guðjónsson 6 Grétar Sigfinnur Sigurðsson 6 Jordao Diogo 5 Óskar Örn Hauksson 3 Baldur Sigurðsson 3 (70 Guðmundur Pétursson 5) Jónas Guðni Sævarsson 6 Atli Jóhannsson 6 (75 Gunnar Örn Jónsson -) Björgólfur Takefusa 5 Prince Rajcomar 4 (60 Guðmundur Benediktsson 5) Þróttur (4-5-1) Sindri Snær Jensson 8* MLKristján Ómar Björnsson 5 Runólfur Sveinn Sigmundsson 7 Dennis Danry 8 Birkir Pálsson 6 Andrés Vilhjálmsson 5 (81 Skúli Jónsson -) Haukur Páll Sigurðsson 6 (88 Ingvi Sveinsson -) Hallur Hallsson 6 Rafn Andri Haraldsson 6 Morten Smidt 5 (63 Davíð Þór Rúnarsson 7) Hjörtur Hjartarson 6
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Gunnar: Eigum eftir að sækja fullt af stigum í sumar Þróttarar náðu sér í dýrmætt stig í kvöld þegar þeir gerðu markalaust jafntefli við KR-inga á heimavelli þeirra síðarnefndu í Vesturbænum. 17. maí 2009 21:39 Bjarni: Tvö töpuð stig KR-ingar fóru illa að ráði sínu þegar þeir gerðu markalaust jafntefli við Þróttara á heimavelli nú í kvöld. Þeir voru mun sterkari aðilinn í leiknum en náðu ekki að koma boltanum í mark Þróttar. 17. maí 2009 21:56 Mest lesið Evrópuþjóðirnar samþykktu að sniðganga HM Fótbolti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Körfubolti Standa með Eygló í martröðinni Sport Uppgjörið: Ilves - Stjarnan 2-1 (5-4 eftir vító) | Úr leik eftir maraþonleik í Finnlandi Fótbolti Týndur í fjórtán daga Fótbolti Barnabarn Idi Amin dæmt úr leik fyrir að skalla andstæðing Sport Howe hættur hjá Newcastle Enski boltinn Fljótasti hvíti maður sögunnar Sport Ancelotti segir landsliðsferli Neymar lokið Fótbolti Tvítugur strákur fær næstum því tólf milljarða króna samning Sport Fleiri fréttir „Þetta er kvikindisleg spurning“ Sjáðu Ollu kveðja með stæl, dramatík í Eyjum og Fram skjóta Valskonur á kaf Kristján Flóki fékk tveggja leikja bann fyrir að traðka á Ívari Uppgjörið: Hapoel Be'er Shiva - Víkingur 2-0 (3-2) | Bitnir í rassinn Uppgjörið: Fram - Valur 4-1 | Valur situr sem fastast á botninum Uppgjörið: ÍBV - FH 2-2 | Eyjakonur sóttu stig á lokamínútunni Uppgjörið: Breiðablik - Þór/KA 2-0 | Ólöf Sigríður á skotskónum og víti forgörðum Nefbraut samherja sinn á æfingu hjá Keflavík „Við þurfum að vera klárir í hvað sem er“ „Er hægt að bjóða upp á þetta ár eftir ár?“ „Ég þarf bara að teipa þetta aðeins“ „Ekki það sem við lögðum upp með“ Sara Björk leitar enn fyrsta sigursins Njarðvík marði botnliðið Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík/Njarðvík 0-0 | Fer seint í sögubækurnar Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 1-1 | Botnliðið náði í stig Tókst á við stjörnurnar í La Liga en heldur nú til Þórs Sölvi keyptur til KR „Frábær leikmaður og skemmtilegur karakter sem við munum sakna“ Sjáðu Ágúst Orra tryggja Breiðabliki sigur og viðhalda ótrúlegri tölfræði Freyja seld til Svíþjóðar Valdi tíu verstu augnablik Stjörnumanna á Skaganum: „Eins og þeir væru drukknir“ Dagskráin í dag: Bikarúrslitaliðin í eldlínunni „Góðir tímar framundan“ „Hefði nú verið betra að vera með tvo sigra“ „Mjög ánægður með margt í leiknum en óánægður með jafntefli“ Uppgjörið: KA - Þór 0-0 | Steindauður norðanslagur „Þetta eru fagmenn sem lifa fyrir boltann“ Fyrirliði Njarðvíkur til Vals Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-0 | Ágúst Orri hetjan Sjá meira
Gunnar: Eigum eftir að sækja fullt af stigum í sumar Þróttarar náðu sér í dýrmætt stig í kvöld þegar þeir gerðu markalaust jafntefli við KR-inga á heimavelli þeirra síðarnefndu í Vesturbænum. 17. maí 2009 21:39
Bjarni: Tvö töpuð stig KR-ingar fóru illa að ráði sínu þegar þeir gerðu markalaust jafntefli við Þróttara á heimavelli nú í kvöld. Þeir voru mun sterkari aðilinn í leiknum en náðu ekki að koma boltanum í mark Þróttar. 17. maí 2009 21:56