Bjarni: Tvö töpuð stig Smári Jökull Jónsson skrifar 17. maí 2009 21:56 Bjarni Guðjónsson. Mynd/E. Stefán
KR-ingar fóru illa að ráði sínu þegar þeir gerðu markalaust jafntefli við Þróttara á heimavelli í kvöld. Þeir voru mun sterkari aðilinn í leiknum en náðu ekki að koma boltanum í mark Þróttar. Bjarni Guðjónsson, leikmaður KR, var vitaskuld mjög svekktur í leikslok. "Þetta er svekkjandi. Þeir líta sjálfsagt á þetta sem unnið stig en þetta eru tvö töpuð stig fyrir okkur. Við vissum að þeir myndu leggjast til baka eins og þeir gerðu en við náðum ekki að sækja nógu hratt á þá eða af nógu mikilli ákefð. Þá er ég ekki bara að tala um sóknarmennina því við erum allir sóknarmenn þegar við erum með boltann og allir varnarmenn þegar við verjumst," sagði Bjarni í samtali við Vísi í leikslok. Þróttarar lögðu mikla áherslu á varnarleikinn og Bjarni sagði það ekki hafa komið KR liðinu á óvart. "Við undirbjuggum okkur undir það að þeir myndu verjast á mörgum mönnum og við lögðum leikinn öðruvísi upp en hann þróaðist en það gekk einfaldlega ekki eftir hjá okkur. Við vörðumst vel og þeir fá held ég ekkert færi og ógna okkur í sjálfu sér ekki neitt. Við náum hins vegar ekki að skapa okkur hættuleg færi og í þeim hálffærum sem við fáum vantar meiri kraft í okkur," bætti Bjarni við. KR spilar við ÍBV í Eyjum í næsta leik, en Eyjamenn eru án stiga eftir fyrstu þrjár umferðirnar. "Það fer eftir aðstæðum hvernig það er að spila í Eyjum. Ef það eru svona aðstæður eins og voru í kvöld þá er það gaman, en ef við þurfum að berjast líka við vindinn verður það erfitt. Vonandi verða kjöraðstæður þar eins og hér og þá verður gaman að fara til Eyja," sagði Bjarni Guðjónsson leikmaður KR að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM Fótbolti Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Íslenski boltinn Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti FH - Víkingur R | Nýta þær sér mistök meistaranna? Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA FH - Víkingur R | Nýta þær sér mistök meistaranna? Þór/KA - Valur | Valskonur í færi á að koma sér úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Fram 4-0 | Unnu Fram í þriðja sinn í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Eiður Smári þjálfar KA Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar nálgast annað sætið Sjóðheit Ída Marín kveður FH Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu „Þetta gekk eins og í sögu“ Sjá meira