Þorvaldur: Auðvitað hef ég áhyggjur Smári Jökull Jónsson skrifar 14. júní 2009 21:24 Þorvaldur Örlygsson.
Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram, var ekki kátur eftir leik sinna manna í Fram gegn Stjörnunni enda Framarar teknir í bakaríið gegn spútnikliði Stjörnunnar. "Við vorum slakir, það er ósköp einfalt. Ég skipti þremur inn í hálfleik og vonaðist eftir meiri breytingu á leik liðsins en það gekk ekki upp. Á síðustu 5 mínútunum fengum við þrjú færi til að skora því um leið og við gátum komið boltanum á rétta staði inni í teignum, þar sem þeir eru mjög slakir, þá fengum við loksins færi en það tók okkur ansi langan tíma að gera það," sagði hundfúll Þorvaldur í leikslok í samtali við Vísi. Leikur Fram var arfaslakur í fyrri hálfleik og leikmenn gjörsamlega á hælunum og nýttu Stjörnumenn það vel. "Við lögðum upp með að vinna leikinn. Við reynum að koma boltanum í rólegheitunum upp völlinn og koma honum síðan fyrir markið en við réðum ekki við þær kýlingar sem við fengum á móti okkur og þeir sluppu því innfyrir," bætti Þorvaldur við. Hvað Stjörnuliðið varðaði sagði Þorvaldur. "Ég get ekki dæmt um það hvort þeir séu betri en aðrir því ég hef ekki séð öll liðin. Stigin telja og menn eru dæmdir af því. Ef menn eru búnir að ná þeim þá eiga þeir skilið að vera þar sem þeir eru." "Auðvitað hef ég áhyggjur þegar gengur illa, eins og menn fagna þegar gengur vel. Þegar gengur illa verða menn bara að taka á því og reyna að snúa gengi liðsins við, það er verkefni útaf fyrir sig. Fyrst og fremst þurfum við að fara að halda stöðugleika og auðvitað fá á okkur færri mörk," sagði Þorvaldur að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Körfubolti „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Körfubolti Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ Körfubolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Körfubolti Fleiri fréttir Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Sjá meira