Erlent

Allt að 3000 Danir munu látast vegna svínaflensunnar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Búist er við því að allt að þrjú þúsund Danir munu látast vegna inflúensu A eða svokallaðrar svínaflensu.

Þetta segir forvarnarfulltrúi í danska heilbrigðiseftirlitinu við fréttastofu danska ríkisútvarpsins, Danmarks Radio, en fjörutíu og tvö ný tilfelli flensunnar greindust þar í landi um síðustu helgi. Þá segir Danmarks Radio að gera megi ráð fyrir að 65 þúsund Bretar láti lífið vegna flensunnar.

Áður fyrr var talið að flensan myndi ekki kosta fleiri en eitt þúsund Dani lífið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×