Lögreglumaður: Ekki fleiri skútumál í bráð 18. ágúst 2009 03:00 Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hefur að mestu hætt rannsóknum á slysalausum umferðaróhöppum, og önnur embætti munu líklega fylgja því fordæmi, segir lögreglumaður. Fréttablaðið/Daníel „
Það verða ekki fréttir af smyglskútum í fjölmiðlum næstu ár,“ skrifar formaður Lögreglufélags Austurlands á vef félagsins. Til að lögregla komi upp um slík mál í framtíðinni þurfi að vera starfhæf lögregla í landinu, og stjórnvöld virðist stefna að því að svo verði ekki. Mikið hefur verið skorið niður í fjárframlögum til lögreglu á undanförnum árum, og hagræðingarkröfur nú koma þegar auka þyrfti verulega framlög til lögreglu, ekki draga úr þeim, skrifar Óskar Þór Guðmundsson, formaður Lögreglufélags Austurlands. Sú sparnaðarkrafa sem nú er uppi mun leiða til enn frekari fækkunar lögreglumanna, skrifar Óskar. Það muni aftur leiða til þess að lögreglumenn verði að hætta að sinna einhverjum verkefnum. Trúlega verði hætt að sinna útköllum þegar nágrannar raski næturró, umferðaróhöpp þar sem ekki verða slys á fólki verði ekki rannsökuð, og forvarnaverkefni verði skorin niður. Þá er líklegt að þjófnaðarmál, innbrot og minni háttar fíkniefnabrot lendi „mjög neðarlega í bunka óunninna verka“, og að líkamsárásir þar sem meiðsl eru óveruleg verði að bíða betri tíma, skrifar Óskar. Þá þýði krafa um minni yfirvinnu að þjónusta lögreglu minnki um helgar þegar landinn skemmti sér. - bj
Mest lesið Eldgos hafið Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum Innlent Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Innlent „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ Innlent „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Innlent Fleiri fréttir Eldgos hafið Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Sjá meira