Erlent

Slegist á þingi

þingið í Suður-Kóreu Læti af þessu tagi munu ekki óalgeng í Suður-Kóreu.
fréttablaðið/AP
þingið í Suður-Kóreu Læti af þessu tagi munu ekki óalgeng í Suður-Kóreu. fréttablaðið/AP
Slagsmál brutust út á þingi Suður-Kóreu í Seúl í gær. Tilefnið var umdeilt fjölmiðlafrumvarp, sem var samþykkt, en það losar um takmarkanir á eignarhaldi fjölmiðla.

Þingmenn stjórnarflokksins tóku sér stöðu við sæti þingforseta til að tryggja að málið fengi hraðari afgreiðslu. Stjórnarandstæðingar brugðust við með því að meina þingmönnum stjórnarflokksins inngöngu í þingsalinn.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×