Mexes ekki með Roma vegna veikinda 11. mars 2009 14:07 Mexes er sagður með 39 stiga hita AFP
Roma hefur orðið fyrir enn einu áfallinu fyrir síðari leikinn gegn Arsenal í Meistaradeildinni í kvöld. Nú er ljóst að varnarmaðurinn sterki Philippe Mexes verður ekki með Roma í kvöld vegna veikinda. Franski varnarmaðurinn er með 39 stiga hita og á því ekki möguleika á að mæta Arsenal í kvöld. Það kemur væntanlega í hlut hins óreynda Souleymane Diamoutene frá Malí að leysa hann af hólmi. Mexes er því enn eitt nafnið á lista fjarverandi leikmanna hjá ítalska liðinu, sem þarf að vinna upp 1-0 forskot Arsenal frá því í fyrri leiknum í Lundúnum. Leikmenn Roma sem ekki spila í kvöld vegna meiðsla eru Simone Perrotta, Marco Cassetti og Cicinho. Daniele De Rossi er í leikbanni og þá er Christian Panucci ekki í Evrópuhóp liðsins. Þar fyrir utan eru miðjumennirnir David Pizarro og Alberto Aquilani tæpir vegna meiðsla og sá síðarnefndi æfði aðeins í fimm mínútur í gær. Brasilíski miðvörðurinn Juan átti við einhver meiðsli að stríða í gær en ætti að ná leiknum og þá er fyrirliðinn Francesco Totti tæpur vegna hnémeiðsla.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Sjá meira