Enski boltinn

Vermaelen genginn formlega í raðir Arsenal

Ómar Þorgeirsson skrifar
Thomas Vermaelen í leik með Belgíu.
Thomas Vermaelen í leik með Belgíu. Nordic photos/Getty images

Belgíski landsliðsmaðurinn Thomas Vermaelen gekk í dag frá félagsskiptum sínum frá Ajax til Arsenal eftir að hafa komist í gegnum lækinsskoðun hjá Lundúnafélaginu. Kaupverðið var ekki gefið upp en er talið vera í kringum 11 milljónir punda.

„Kaupin á Thomas eru frábær fyrir Arsenal og við erum gríðarlega ánægðir með að fá hann til okkar," segir knattspyrnustjórinn Arsene Wenger í samtali við opinbera heimasíðu Arsenal.

Hinn 23 ára gamli fyrrum fyrirliði Ajax var í skýjunum með að vera kominn til Arsenal.

„Í fyrsta lagi verð ég að segja að það var erfið ákvörðun að yfirgefa Ajax og ég vill þakka öllum hjá félaginu fyrir ánægjulegt samstarf. Í öðru lagi er gríðarlega ánægjulegt að vera kominn til Arsenal. Ég hef kynnst meistaradeildinni með Ajax og vonast til þess að kynnast henni enn betur og ná lengra þar með Arsenal. Það verður líka frábært að spila í ensku úrvalsdeildinni, sem er að mínu mati besta deild í heimi," segir Vermaelen glaður í samtali við heimasíðu Arsenal.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×