Erlent

Loftslagsviðræður á síðasta snúningi

Afhentu grænar vekjaraklukkur Yvo de Boyer, framkvæmdastjóri loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem er maðurinn í jakkafötunum á myndinni, fékk í gær afhenta græna vekjaraklukku frá baráttusamtökum sem vilja minna á að tíminn sé að renna út.nordicphotos/AFP
Afhentu grænar vekjaraklukkur Yvo de Boyer, framkvæmdastjóri loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem er maðurinn í jakkafötunum á myndinni, fékk í gær afhenta græna vekjaraklukku frá baráttusamtökum sem vilja minna á að tíminn sé að renna út.nordicphotos/AFP

Fulltrúar Afríkuríkja vilja að auðug ríki útskýri hvernig þau hugsi sér að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, náist um það bindandi samkomulag á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn í næsta mánuði.

Óttast er að ekkert verði úr slíku samkomulagi. Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, sagði í gær engar líkur á því að fyrir áramót næðist neitt samkomulag sem fæli í sér lagalega skuldbindingu, eins og Evrópuríki hafa barist fyrir.

Lars Løkke Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, sagði hins vegar erfitt að koma viðræðum af stað á ný ef samkomulag næðist ekki áður en fresturinn til þess rennur út í desember.

Fulltrúar frá 192 ríkjum sitja þessa dagana á Spáni bak við luktar dyr við að berja saman samkomulagsdrög sem leggja megi fyrir ráðstefnuna í desember. Fundarhöld féllu niður á þriðjudag þegar fulltrúar Afríkuríkja gengu út til að leggja áherslu á kröfur sínar um að auðugu ríkin leggi meira af mörkum.

„Ég hef ekki séð neinar raunverulegar vísbendingar um að þau ætli að auka metnað sinn,“ sagði Lumumba Di-Aping, fulltrúi frá Súdan, sem er formaður samninganefndar 135 þróunarríkja, þar á meðal Afríkuríkjanna fimmtíu. „Við þurfum að sjá hvað gerist.“

Fundarhöldin héldu þó áfram í gær, þegar auðugu ríkin hófu að gera grein fyrir því hvort samdrætti í losun yrði náð með því að draga raunverulega úr losuninni eða hvort þau ætluðu að kaupa sér losunarkvóta.

Þróunarlönd krefjast þess að iðnríkin dragi á næsta áratugi undanbragðalaust úr losun um fjörutíu prósent, frá því sem var árið 1990, til þess að draga úr því tjóni sem loftslagsbreytingar geta valdið víðs vegar um jörðina.

Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir öllu skipta að þessar viðræður skili árangri svo samkomulag náist á ráðstefnunni í desember. Ef ekkert sé að gert muni ástandið versna.

„Fólksflutningar verða vegna meiri öfga í veðurfari, svo sem langvarandi þurrka, fárviðris og skógarelda,“ sagði Ban á Grikklandi í gær, þar sem hann ræddi við blaðamenn.

gudsteinn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×