Umfjöllun: Stjörnumenn standa undir nafni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. maí 2009 13:56 Tryggvi Bjarnason og samherjar hans fagna marki hans í kvöld. Mynd/Valli
Óhætt er að segja að Stjarnan hafi byrjað af krafti í Pepsi-deild karla. Í kvöld vann liðið 3-0 sigur á ÍBV á heimavelli í nýliðaslag deildarinnar. Eftir leik kvöldsins er Stjarnan með fullt hús stiga og markatöluna 12-1. Það gerir fjögur mörk að meðaltali í leik og því ekki hægt að segja annað en að Stjörnumenn hafi staðið fyrir skemmtilegum leikjum. Þeir hafa sannarlega staðið undir nafni félagsins. ÍBV er hins vegar ekki búið að ganga vel í upphafi móts. Liðið enn án stiga og á enn eftir að skora mark. Stjörnumenn byrjuðu betur í kvöld og fengu nokkur hættuleg færi. Þeir sóttu mikið og voru duglegir að skapa hættu með föstum leikatriðum - annað hvort í hornspyrnum, aukaspyrnum eða stórhættulegum innköstum Steinþórs Freys Þorsteinssonar. Það var eftir eina af átta hornspyrnum Stjörnunnar í fyrri hálfleik að heimamenn komust yfir. Eyjamenn klikkuðu á varnarleiknum og skildu Tryggva Bjarnason eftir einan sem skallaði knöttinn í markið eftir hornspyrnu Steinþórs Freys. Eyjamenn fengu þó sín færi og tvö mjög góð færi í seinni hálfleik. En í bæði skiptin var Bjarni Þórður Halldórsson markvörður vandanum vaxinn. Fyrst varði hann skot Augustine Nsumba og svo varð hann fyrri til að ná í boltann er varamaðurinn Ajay Leitch-Smith var við það að komast einn inn fyrir vörn heimamanna. Markaskorarinn Tryggvi Bjarnason hafði farið af velli í hálfleik, væntanlega vegna meiðsla, og kom Arnar Már Björgvinsson inn í hans stað. Hann kom einnig inn á sem varamaður í síðari hálfleik Stjörnunnar og Þróttar og þá skoraði hann tvö mörk. Hann endurtók þann leik í kvöld. Fyrst eftir góða sókn þar sem hinn öskufljóti Halldór Orri Björnsson bar boltann upp vinstri kantinn og kom honum fyrir markið. Þar hafði Arnar betur í baráttunni við Albert Sævarsson, markvörð ÍBV, og kom boltanum í netið. Albert gerði sig svo sekan um slæm mistök í blálok leiksins er hann fékk boltann frá varnarmanni sínum. Albert var ekki nógu fljótur að losa sig við boltann, lét Arnar stela honum af sér og þurfti þá síðarnefndi aðeins að ýta boltanum yfir línuna. Niðurstaðan því góður 3-0 sigur Stjörnunnar en þess ber að geta að bæði karla- og kvennalið félagsins tróna nú á toppi sinna deilda - Pepsi-deildar karla og Pepsi-deildar kvenna. Stjarnan - ÍBV 3-0 1-0 Tryggvi Bjarnason (35.) 2-0 Arnar Már Björgvinsson (62.) 3-0 Arnar Már Björgvinsson (86.) Stjörnuvöllur. Áhorfendur: 1011 Dómari: Magnús Þórisson (6)Skot (á mark): 10-8 (5-3)Varin skot: Bjarni 3 - Albert 2.Horn: 10-3Aukaspyrnur fengnar: 16-19Rangstöður: 2-2 Stjarnan (4-4-2): Bjarni Þórður Halldórsson 7 Guðni Rúnar Helgason 8 Tryggvi Bjarnason 7 (46. Arnar Már Björgvinsson 8) Daníel Laxdal 7 Hafsteinn Rúnar Helgason 6 Jóhann Laxdal 6 Birgir Hrafn Birgisson 6 Björn Pálsson 6 Halldór Orri Björnsson 7 Steinþór Freyr Þorsteinsson 8 - maður leiksins (89. Andri Sigurjónsson -) Þorvaldur Árnason 6 (72. Magnús Björgvinsson -)ÍBV (4-5-1): Albert Sævarsson 6 Arnór Eyvar Ólafsson 5 Yngvi Borgþórsson 6 Matt Garner 3 Þórarinn Ingi Valdimarsson 5 Augustine Nsumba 5 (88. Gauti Þorvarðarson -) Tonny Mawejje 6 Bjarni Rúnar Einarsson 4 (55. Ajay Leitch-Smith 5) Pétur Runólfsson 4 Christopher Clements 5 Viðar Örn Kjartansson 4 (75. Elías Ingi Árnason -)Leiknum var lýst beint á Boltavakt Vísis: Stjarnan - ÍBV.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Heimir: Tek ofan fyrir Stjörnunni Heimir Hallgrímsson var eðlilega ekki ánægður með úrslit leiks sinna manna í ÍBV gegn Stjörnunni í Garðabænum í kvöld. 17. maí 2009 22:38 Steinþór: Alvöru próf í næsta leik Steinþór Freyr Þorsteinsson átti glimrandi góðan leik fyrir Stjörnuna sem vann 3-0 sigur á ÍBV í 3. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. 17. maí 2009 22:32 Mest lesið Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti Spá því að ferðamennskan blómstri á eyjunum eftir HM Fótbolti Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Fótbolti FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja Fótbolti Trump um símtalið til Infantino: „Ég fékk þá til að gera þetta“ Fótbolti Martínez hættur með portúgalska landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Keflavík - Fram 1-1 | Heimamenn upp í efri hlutann Amin Cosic orðinn leikmaður Noregsmeistaranna Fór betur en áhorfðist hjá Aroni Snæ Með sitt eigið HM í Bestu deildinni Þór yngri en þegar báðir bræður hans skoruðu sitt fyrsta mark Alex Freyr: „Það er kominn hundur í menn” Völsungsliðin skoruðu sex mörk en fengu bara eitt stig ÍBV-Valur 1-0 | Alex Freyr í aðalhlutverki í enn einum Eyjasigri ÍA – Breiðablik 1-2 | Endurkomusigur Blika sem spilltu gleðinni á Akranesi Uppgjörið: Liðin skiljast jöfn í Kaplakrika Hafa ekki unnið nágrannana hinum megin við hraunið í þrjú ár Fyrsti markvörðurinn til að skora utan af velli í 48 ár Sjáðu skrautlegu mörkin fyrir norðan og dramatíkina í Víkinni Sumarmótin: Æfir út í dómarann þrátt fyrir sigur Átti Amin að sjá rautt? Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2| Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því „Stundum þarf bara að vinna að alvöru fyrir þessu“ Uppgjör Þór Ak. - KR | 3-3. Endurkoma hjá KR „Mér leið svipað í 3-0 eins og í 0-0“ Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Sjáðu skemmtileg og mismunandi fagnaðarlæti strákanna á Orkumótinu KR-ingar mæta eina liðinu sem er búið að fá á sig fleiri mörk en þeir „Ég er farinn“ Þórsarar taka á móti KR-ingum í Gedda-treyjunni „Þú verður að spyrja hann að því“ Seldu einn sinn besta leikmann til Bandaríkjanna Aðstoðarþjálfari Stjörnunnar segir upp Albert um KA: „Eins og þú hafir verið fullur í Football Manager“ Halldór Árna: Víkingar sáu hið fullkomna tímabil en þetta er fljótt að breytast „Mér finnst það bara algjört bull“ Sjá meira
Heimir: Tek ofan fyrir Stjörnunni Heimir Hallgrímsson var eðlilega ekki ánægður með úrslit leiks sinna manna í ÍBV gegn Stjörnunni í Garðabænum í kvöld. 17. maí 2009 22:38
Steinþór: Alvöru próf í næsta leik Steinþór Freyr Þorsteinsson átti glimrandi góðan leik fyrir Stjörnuna sem vann 3-0 sigur á ÍBV í 3. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. 17. maí 2009 22:32