Erlent

Þrettán látnir í skotbardögum á Gaza

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Grímuklæddur Hamasliði.  Mynd úr safni.
Grímuklæddur Hamasliði. Mynd úr safni.

Að minnsta kosti þrettán hafa látist og um sextíu særst í hörðum skotbardögum á Gaza svæðinu.

Samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins umkringdu Hamasliðar og lögregluyfirvöld mosku þar sem stuðningsmenn íslamsks öfgaklerks héldu til.

Klerkurinn leiðir samtökin Jund Ansar Allah (Her meðhjálpara Guðs), sem talið er að hafi tengsl við al-Qaeda.

Samtökin eru gagnrýnin á Hamassamtökin, sem fara með stjórn mála á Gaza svæðinu, þar eð þau telja Hamas ekki nógu Íslamísk.

Varðliðar skutu sprengjum að moskunni og umkringdu einnig heimili klerksins, sem er nærri Egypsku landamærunum. Talið er að hundrað stuðningsmenn samtakanna hafi verið í moskunni þegar árásin hófst.

Svæðinu í kring hefur nú verið lokað á meðan bardagar standa yfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×