Palestínumenn selja ísraelsk gróðurhús í Egyptalandi Óli Tynes skrifar 31. janúar 2008 20:00 Ísraelsku gróðurhúsin taka þeim egypsku langt fram.
Þegar Hamas liðar sprengdu upp múr á landamærum Gaza strandarinnar og Egyptalands, þustu tugþúsundir Palestínumanna yfir landamærin til þess að kaupa nauðsynjar sem eru af skornum skammti á ströndinni. En það fóru ekki allir til þess að kaupa. Sumir fóru til þess að selja. Yahya Salama fór yfir landamærin til þess að selja Egyptum ísraelsk gróðurhús. Þegar Ísraelar yfirgáfu Gaza ströndina skildu þeir meðal annars eftir gríðarlegan fjölda af gróðurhúsum, sem Palestínumenn gátu nýtt sér. Vegna lokunar landamæra Gaza að Ísrael hafa Palestínumenn hinsvegar ekki getað selt framleiðslu sína. Því ákvað Salama að kaupa gróðurhúsin ódýrt á ströndinni og selja þau með hagnaði í Egyptalandi. Og Salama hefur selt vel. Ísraelsku gróðurhúsin eru miklu betri en þau sem Egyptar hafa aðgang að. Þau eru léttari og sterkari og með mun fullkomnari búnaði bæði til þess að vökva og verjast vírusum og sníkjudýrum. Egyptar hafa því keypt öll gróðurhúsin sem Salama hefur getað dröslað yfir landamærin í traktorskerrunni sinni.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fleiri fréttir Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Sjá meira