Erlent

Kjallarabörnin í Austur­ríki vel upp alin

Óli Tynes skrifar
Dýflissan í Austurríki.
Dýflissan í Austurríki.

Kjallarabörn Fritzl fjölskyldunnar í Austurríki eru sögð ótrúlega vel upp alin. Lögfræðingur móðurinnar, Elísabetar segist bera takmarkalausa virðingu fyrir henni, fyrir hvernig henni tókst að vinna úr fangavist sinni.

Christopher Herbst talaði við bresku sjónvarpsstöðina Channel 4. Hann bendir á að Elísabet hafi aðeins verið 18 ára gömul þegar faðir hennar læsti hana niðri í kjallaranum og hóf að nauðga henni.

Kenndi það sem hún hafði lært

Þarmeð hafi líf hennar sem ungrar stúlku í raun tekið enda. Herbst segir að svo hafi börnin komið eitt af öðru. Elísabet hafi þurft að búa þeim líf í fangavistinni án allrar aðstoðar.

Hún brást við með því að kenna þeim allt sem hún hafði lært á sinni stuttu ævi utan dýflissunnar. Hún kenndi þeim að lesa og skrifa, kenndi þeim stærðfræði og það sem hún kunni í öðrum tungumálum og öðrum fögum.

Lögfræðingurinn segir að börnin séu kurteis og mjög vel upp alin. Svo virðist sem Elísabet hafi reynt að búa þeim líf með sömu innviðum og reglum og gilda á venjulegum heimilum.

Hvað er þrumuveður?

Kjallarabörnin eru nú að læra á umheiminn. Christopher Herbst segir frá því hversu furðu lostinn yngsta barnið, hinn sex ára gamli Alex, hafi orðið þegar hann sá þrumuveður í fyrsta skipti.

Alex er sex ára og Herbst segir að hann sé kvikur og fyndinn. Stefán bróðir hans sem er 18 ára er meira fyrir sjálfan sig. Hann er hinsvegar kurteis og ótrúlega vel lesinn.

Elsta systirin Kerstin sem er 19 ára er enn á sjúkrahúsi, þar sem henni er haldið sofandi í öndunarvél.

Nýir fangar

Herbst segir að systkinin þrjú sem tekin voru úr kjallaranum við fæðingu og látin búa með Fritzl hjónunum í húsinu, gjaldi frelsi systkina sinna dýru verði.

Þótt þau lifðu þar undir járnhæl mannsins sem var bæði afi þeirra og faðir áttu þau ömmu sem elskaði þau og hugsaði vel um þau.

Þessi börn eru Lisa sem nú er 16 ára, Monika sem er 14 ára og Alexander sem er 12 ára. Þau gengu í skóla og eignuðust vini.

En nú eru það þau sem eru lokuð inni, segir Herbst. Þau geta ekki farið í skólann eða hitt vini sína. Þar veldur miklu um sjúklegur ágangur fjölmiðla.

Hver verður framtíðin?

Lögfræðingurinn segir að Elísabet sé enn að íhuga hvort þau eigi að taka sér ný nöfn og hverfa. Hún er einnig ennþá að íhuga hvort hún eigi að höfða mál á hendur föður sínum og krefjast fébóta.

Yfir henni vofir sjúkrahúsreikningur sem þegar er orðinn yfir 120 milljónir íslenskra króna.

Því miður er faðir hennar og nauðgari þegar skuldugur uppfyrir haus.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×