Erlent

Enn tekist á í Kenýa

Átök hafa verið í Kenýa undanfarnar vikur.
Átök hafa verið í Kenýa undanfarnar vikur.

Átök héldu áfram í Kenýa í dag þrátt fyrir friðarumleitanir meðal stjórnmálamanna í Naíróbí. Að minnsta kosti tíu menn létu lífið í átökum ættflokka í bænum Naívassa. Fréttamenn horfðu upp á vopnaða menn draga mann út úr fólksflutningabíl og berja hann til dauða.

Eldur hefur verið lagður að heimilum fjölda fólks og þykkur reykjarmökkur liggur yfir bæjum þar sem átök hafa átt sér stað. Kofi Annan átti í morgun viðræður við Raila Odinga, leiðtoga stjórnarandstöðunnar. Alls er talið að um 750 menn hafi látið lífið í átökum undanfarinna daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×