Kröfu RÚV í launaleyndarmálinu hafnað 18. mars 2008 17:24 Páll Magnússon, útvarpsstjóri. MYND/GVA
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hafnaði í dag kröfu Ríkisútvarpsins þess efnis að gildistöku úrskurðar nefndarinnar frá 11. mars síðastliðnum yrði frestað. Þar var úrskurðað að RÚV ætti að veita Vísi aðgang að ráðningarsamningum Þórhalls Gunnarssonar og Sigrúnar Stefánsdóttur dagskrárstjóra. Ritstjóri Vísis, Óskar Hrafn Þorvaldsson, fór fram á það við RÚV að stofnunin veitti honum aðgang að téðum upplýsingum og var þeirri beiðni synjað. Í framhaldi af því kærði ritstjórinn ákvörðun RÚV á grundvelli upplýsingalaga. RÚV krafðist þess að réttaráhrifum yrði frestað í málinu vegna þess að afar mikilvægir hagsmunir væru í húfi og yrði úrskurðinum framfylgt gæti það skaðað verulega samkeppnis- og réttarstöðu Ríkisútvarpsins gagnvart samkeppnisaðilum sínum. Ritstjóri Vísis krafðist þess hins vegar að beiðni Ríkisútvarpsins um frestun réttaráhrifa yrði synjað. Úrskurðarnefndin tók undir með Vísi og sagði í úrskurði sínum í dag að þrátt fyrir að heimild sé í upplýsingalögum til þess að fresta réttaráhrifum þá eigi það ekki við í þessu tilviki og var kröfunni því hafnað. Ekki náðist í æðstu stjórnendur Ríkisútvarpsins í dag.
Mest lesið Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Allt að sautján stiga hiti í dag Veður „Þurfum að huga að forvörnum“ Fréttir Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Fleiri fréttir Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Sjá meira