Yfir 4500 börn fæddust hér á landi í fyrra 18. mars 2008 09:14
4560 börn fæddust hér á landi í fyrra samkvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birtir í dag. Þar kemur fram að um hafi verið að ræða tæplega 2360 drengi og um 2200 stúlkur. Börnunum fjölgaði eilítið frá árinu áður þegar þau reyndust 4415. Frjósemi íslenskra kvenna var heldur meiri árið 2007 en nokkur síðustu ár en hún er reiknuð sem fjöldi lifandi fæddra barna á ævi hverrar konu . Árið 2007 mældist frjósemi hérlendis 2,1 barn á ævi hverrar konu, samanborið við 2,07 börn árið 2006 og 2,05 börn árið 2005. Undanfarna tvo áratugi hefur frjósemi hérlendis verið í kringum tvö börn á ævi hverrar konu að meðaltali. Hámarki náði frjósemin í lok sjötta áratugarins og upphafi þess sjöunda en þá gátu íslenskar konur vænst þess að eiga 4,1 barn um ævina. Næstmesta frjósemi í Evrópu Frjósemi á Íslandi er nú hærri en annars staðar í Evrópu að Tyrklandi undanskildu. Þriðja mest var hún í Frakklandi, tvö börn á ævi hverrar konu árið 2006. Samanborið við önnur lönd í Evrópu var fæðingartíðni einnig há annars staðar á Norðurlöndunum. Af Norðurlöndunum var hún hæst í Noregi, 1,9 börn á ævi hverrar konu. Á Bretlandseyjum var fæðingartíðni svipuð og á Norðurlöndunum árið 2006, eða 1,84 í Bretlandi og 1,93 á Írlandi. Lægst var fæðingartíðnin innan álfunnar í löndum Austur-Evrópu árið 2006. Þar var hún á bilinu 1,24 til 1,55, lægst í Slóvakíu en hæst í Eistlandi.Á sama tíma og frjósemi hefur minnkað hefur meðalaldur mæðra hækkað og konur eignast sitt fyrsta barn síðar en áður var. Frá byrjun sjöunda áratugarins og fram yfir 1980 var meðalaldur frumbyrja 22 ár en eftir miðjan níunda áratuginn og til dagsins í dag hefur meðalaldur frumbyrja hækkað og var 26,6 ár árið 2007.Rétt rúmur þriðjungur þeirra barna sem fæddust árið 2007 voru fædd innan hjónabands sem er lágt hlutfall ef miðað er við önnur Evrópulönd. Hlutfall þeirra barna sem áttu foreldra í óvígðri sambúð var tæp 50 prósent og hlutfall þeirra sem áttu foreldra sem ekki voru skráðir í sambúð var um 14 prósent árið 2007 sem er svipað hlutfall og árið áður.
Mest lesið Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Allt að sautján stiga hiti í dag Veður „Þurfum að huga að forvörnum“ Fréttir Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Fleiri fréttir Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Sjá meira