Íranskur hommi leitar til Hollendinga um hjálp 9. mars 2008 20:11 Mahmoud Ahmadinejad, Íransforseti segir samkynhneigð ekki til í Íran.
Nítján ára samkynhneigður íranskur námsmaður á yfir höfði sér dauðadóm í heimalandi sínu vegna kynhneigðar sinnar. Hann fékk ekki pólitískt hæli vegna þessa í Bretlandi og hefur nú leitað á náðir yfirvalda í Hollandi. Medhi Kazemi kom til Bretlands árið 2004 til að leggja stund á nám við háskóla í Lundúnum. Nokkru síðar komst hann að því að kærasti hans heima í Íran hefði verið handtekinn, ákærður fyrir samkynhneigð og síðan hengdur. Við yfirheyrslur sagði hinn ákærði frá því að Kazemi væri kærasti hans. Kazemi óttaðist því að hann sjálfur yrði ákærður og tekinn af lífi færi hann heim og sótti því um hæli í Bretlandi. Þeirri umsókn var synjað í fyrra. Þá flúði Kazemi til Hollands. Þar er hann í haldi á meðan dómari ákveður hvort hann verði sendur aftur til Bretlands eða honum leyft að sækja um hæli í Hollandi. Kazemi óttast að Bretar sendi hann stax heim til Írans verði honum vísað frá Hollandi. Lögmaður Kazemis í Hollandi segir yfirvöld þar veita samkynhneigðum Írönum sérstaka vernd. Ekkert sé öruggt um slíkt í Bretlandi. Samkvæmt upplýsingum frá írönskum baráttusamtökum hafa yfirvöld í Íran tekið rúmlega fjögur þúsund samkynhneigða menn og konur af lífi frá byltingunni 1979. Í ræðu í Bandaríkjunum í fyrra sagði Mahmoud Ahmadinejad, Íransforseti, að í heimalandi hans væri ekkert samkynhneigt fólk að finna.
Mest lesið Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Yfirheyra bandamenn sína í NATO Erlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Innlent Fleiri fréttir Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sjá meira