Dómsdagshvelfingin á Svalbarða vígð í dag 26. febrúar 2008 10:35 Hvelfingin á að þola kjarnorkuárás og jarðskjálfta. MYND/AP
Hin svokallaða dómsdagshvelfing á Svalbarða, sem getur geymt milljónir frætegunda, var formlega vígð í dag. Þar er um að ræða fræ mikilvægra plantna frá heiminum öllum og verða þau geymd í hvelfingunni sem djúpt í jörðu. Fram kemur í frétt Norðurlandaráðs að líffræðilegur fjölbreytileiki eigi undir högg að sækja, ekki síst vegna aukinna loftslagsbreytinga. Náttúruhamfarir gætu orðið afdrifaríkar fyrir plöntuauðlindir jarðar en með öryggisgeymslunum á Svalbarða verði tryggt að þurrkar og flóð útrými ekki mikilvægum tegundum.Alls verður hægt að geyma 4,5 milljónir frætegunda í hvelfingunni, þar á meðal fræ af nær öllum tegundum grænmetis, ávaxta og annarra tegunda sem til eru í heimunum. Við opnun öryggisgeymslunnar eru þegar geymdar rúmlega 250.000 frætegundir, þar af nær 13.000 norrænar tegundir.Frægeymslan á Svalbarða er í raun þrír hellar sem sprengdir eru rúmlega hundrað metra niður í bjargið. Norðmenn byggðu og eiga geymslurnar en Norræna ráðherranefndin tekur virkan þátt í starfinu. Norræna stofnunin NordGen, sem vinnur að verndun erfðaauðlinda, mun sjá um rekstur geymslunnar.„Staðsetning geymslunnar er eins hagstæð og hugsast getur með tilliti til geymslu plöntufræja. Sífrerinn og staðsetning geymslunnar langt niður í iðrum jarðar tryggir að fræin haldast frosin, jafnvel þó að rafmagnslaust verði," segir í frétt Norðurlandaráðs.
Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Haraldur konungur lagður inn á spítala Erlent Fleiri fréttir Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Sjá meira