Erlent

Lokaatlaga gerð að Al kaída

MYND/AFP

Íraski stjórnarherinn er að flytja menn og tæki til Mosul borgar í norðanverðu Írak. Maliki forsætisráðherra segir að brátt verði gerð lokaatlaga að sveitum Al kaída samtakanna í landinu. Lítið er um bandarískar hersveitir á þessu svæði.

Umfangsmiklir hergagnaflutningar hafa verið til Mosul undanfarið, meðal annars á skriðdrekukm og þyrlum. Mosul er höfuðvígi Al kaída samtakanna í Írak, en í samtökuknum eru aðallega harðlínumenn sem tilheyra súnní trúarhópi múslima. Súnníar eru í minnihluta í Írak en réðu miklu á tíma Saddams Hussein.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×