Erlent

Forseti Ítalíu boðar til neyðarfundar

Forseti Ítalíu hefur boðað helstu stjórnarmálaforingja landsins til neyðarfundar í dag til að ræða stöðuna sem komin er upp í kjölfar afsagnar Romano Prodi.

Forsetinn mun vera mótfallinn því að halda kosningar strax og vill að mynduð verði bráðabirgðstjórn. Á meðan sú stjórn sitji verði unnið að nauðsynlegum endurbótum á kosningalöggjöfinni á Ítalíu.

Fréttaskýrendur telja að almenn samstaða sé meðal þingmanna um að breyta þessari úreltu löggjöf ef frá er talinn Silvio Berlusconi og flokkur hans sem vill kosningar strax.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×