Erlent

John Kerry styður Obama í forkosningunum

Frétt dagsins af forkosningum Demókrata í Bandaríkjunum er sú að öldungardeildarþingmaðurinn John Kerry hefur ákveðið að styðja Barak Obama í kosningnum.

Þetta kemur eins og köld vatnsgusa framan í andlit John Edwards sem taldi sig eiga stuðning Kerry vísan. Edwards var sem kunnugt er varaforsetaefni Kerrys í síðustu forsetakosningum. Kerry segir að hann telji Obama var þann mann sem geti breytt Bandaríkjunum og því fá hann stuðning sinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×