Moon segir Störe hafa verið skotmark talibana 15. janúar 2008 11:53
Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir utanríkisráðherra Noregs og sendinefnd hans hafa verið skotmark talibana sem réðust á hótel í Kabúl í Afganistan í gær. Ráðherrann sakaði ekki en norskur blaðamaður var meðal þeirra sex sem féllu. Utanríkisráðherra fordæmir árásina. Hún segir íslenskum friðargæsluliðum óhætt enda á afgirtu svæði. Fjórir menn réðust inn á Serena-hótelið með handsprengjum og byssuskothríð. Þeir felldu alls fjóra á leið sinni inn á hótellóðina þar sem einn mannanna sprengdi sig í loft upp. Blaðamaður norska Dagblaðsins og starfsmaður norska utanríkisráðuneytisins særðust en norsk sendinefnd með Jonas Gahr Störe,utanríkisráðherra í fararbroddi var stödd á hótelinu. Norski blaðamaðurinn lést af sárum sínum á sjúkrahúsi. Utanríkisráðherrann sakaði ekki. Árásin í gær mun sú fyrsta sem beint er gegn hóteli í Kabúl frá falli talibanastjórnarinnar 2001. Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, fullyrðir að norska sendinefndin - og þar með norski utanríkisráðherran - hafi verið skotmörk talibananna. Um fimm hundruð norskir friðargæsluliðar eru að störfum í Afganistan og var Gahr Störe þangað kominn til að hitta fulltrúa þeirra og helstu leiðtoga í landinu. Þrettán Íslendingar á vegum friðargæslunnar eru að störfum hjá Atlantshafsbandalaginu í Afganistan.
Mest lesið Kourani farinn úr landi Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Innlent Fleiri fréttir Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Sjá meira