Enski boltinn

United vann Vodacom bikarinn

Elvar Geir Magnússon skrifar
Ryan Giggs var maður leiksins í dag en hann skoraði fyrsta markið af fjórum.
Ryan Giggs var maður leiksins í dag en hann skoraði fyrsta markið af fjórum.

Manchester United vann 4-0 sigur á Kaizer Chiefs í úrslitaleik Vodacom æfingamótsins í dag. Leikurinn fór fram í Jóhannesarborg og var sigur United öruggur eins og tölurnar gefa til kynna.

Ryan Giggs, fyrirliði Manchester United, skoraði eina markið í fyrri hálfleik eftir góðan undirbúning Lee Martin. Í seinni hálfleik bætti United síðan við þremur mörkum. Fyrst var að verki Wayne Rooney eftir sendingu Danny Simpson.

Hinir ungu Tom Cleverly og Frazier Campbell innsigluðu síðan sigur United. Ryan Giggs tók við verðlaunabikarnum eftir leik en hann var valinn maður leiksins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×