Enski boltinn

Jói Kalli og félagar töpuðu fyrir toppliðinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jóhannes Karl í leik með Burnley.
Jóhannes Karl í leik með Burnley. Nordic Photos / Getty Images

Öll þrjú Íslendingaliðin í ensku B-deildinni voru í eldlínunni í dag. Burnley, lið Jóhannesar Karls Guðjónssonar, tapaði fyrir toppliði Wolves á útivelli, 2-0.

Michael Kightly skoraði bæði mörk Úlfanna í dag en Jóhannes Karl var tekinn af velli á 75. mínútu.

Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn fyrir Coventry sem tapaði fyrir Crystal Palace á heimvelli í dag, 2-0. Aron Einar nældi sér í gult spjald á 72. mínútu leiksins.

Þá vann Reading 3-0 sigur á Derby í dag. Ívar Ingimarsson lék allan leikinn fyrir Reading en Brynjar Björn Gunnarsson kom inn á sem varamaður á 79. mínútu.

Wolves er á toppi deildarinnar með sex stiga forystu á Birmingham. Reading er svo í þriðja sæti með 30 stig, sjö stigum á eftir Wolves.

Burnley er fimmta sæti með 26 stig en Coventry í því sautjánda með 20 stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×