Enski boltinn

Chelsea vill halda Clarke

Elvar Geir Magnússon skrifar
Avram Grant og Steve Clarke á síðustu leiktíð.
Avram Grant og Steve Clarke á síðustu leiktíð.

Chelsea hefur neitað að taka við uppsagnarbréfi frá Steve Clarke. Chelsea hafði bannað Clarke að hefja viðræður við West Ham sem vill fá hann til að aðstoða Gianfranco Zola.

Clarke sagði þá upp störfum í morgun en uppsögn hans var ekki samþykkt af Chelsea. Clarke starfar sem aðstoðarþjálfari aðalliðs Chelsea.

„Steve er mjög mikilvægur fyrir mig og Chelsea," sagði Luiz Felipe Scolari, stjóri Chelsea. „Hann hefur mikla þekkingu á enska boltanum og félaginu."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×