Skotið á lögreglu með flugeldum í bæ í Danmörku 2. janúar 2008 09:31 Ungmenni í Kokkendal hafa skotið flugeldum í allt aðrar áttir en upp í loftið. MYND/Vilhelm
Kalla þurfti til mikinn fjölda lögreglumanna vegna óeirða í bænum Kokkendal á Norður-Sjálandi yfir áramótin. Skotið var á lögregluna með flugeldum og mikil skemmdarverk voru unnin á verslunum í bænum bæði á gamlárskvöld og nýársnótt. Það var hópur um tuttugu ungmenna sem stóð að þessum óeirðum. Þær hófust á gamlársdagskvöld og blossuðu svo aftur upp í nótt af auknum krafti við Holmegaardscentret í Kokkendal. Danskir fjölmiðlar segja að nánast stríðsástand hafi ríkt í bænum þessar tvær nætur. Í nótt varð lögreglan að draga sig til baka frá svæðinu þar sem hún var ekki nægilega vel mönnuð til að ná stjórn á ástandinu. Þá lágu lögreglumennirnir undir stöðugum árásum frá ungmennunum sem skutu á lögregluna með flugeldum og köstuðu kínverjum að þeim. Jafnframt voru útihurðir verslana brotnar upp og inn í þær kastað flugeldum. Lögreglan kallaði eftir auknum liðstyrk og brátt voru tíu lögreglusveitir í óeirðabúningum og með hunda komnar á svæðið. Jafnframt þurfti að kalla til sprengjusveit lögreglunnar eftir að risastór flugeldakaka fannst í kjallara einnar verslunarinnar. Er liðstyrkurinn kom á svæðið flúðu ungmennin og ekki kom til átaka. Hinsvegar tókst lögreglunni ekki að handtaka neinn af þeim sem stóðu fyrir þessum óeirðum
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Spenntur fyrir fundi með „góðum vinum Bandaríkjanna“ Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Sjá meira