Jenas er ánægður með Redknapp 31. október 2008 10:55 Jermaine Jenas og félagar hafa aðeins rétt úr kútnum með tilkomu Redknapp NordicPhotos/GettyImages
Jermaine Jenas, varafyrirliði Tottenham, hefur nú gefið upp hver galdurinn hafi verið á bak við viðsnúning liðsins eftir að Harry Redknapp tók við. Tottenham hefur náð í fjögur stig í leikjunum tveimur síðan Redknapp tók við og margir vilja meina að æsilegt 4-4 jafntefli liðsins við Arsenal á Emirates gæti orðið leikurinn sem hristir slenið af Tottenham í vetur. Liðið er enn á botninum, en Jenas segir að Redknapp hafi komið brosi á leikmenn liðsins eftir að hann kom. "Harry hefur þjappað hópnum betur saman og mér sýnist að meira að segja mennirnir sem eru ekki í liðinu séu farnir að brosa. Svona er Redknapp bara. Maður finnur fyrir nærveru hans á vellinum og í klefanum og hann hefur trú á okkur. Ég tek ekkert af Juande Ramos, en Redknapp er þekktur fyrir að ná að peppa menn upp," sagði Jenas. "Það er mikið af ungum leikmönnum hjá Tottenham og stundum þurfa þeir bara á því að haldi að tekið sé um öxl þeirra. Harry er maðurinn í þetta. Hann hefur ekki verið lengi hérna, en hann hefur fundið sér tíma til að tala við alla leikmennina einn á einn." Jenas skoraði glæsilegt mark í leiknum gegn Arsenal en þó úrslitin hafi verið óvæntur bónus fyrir Tottenham eftir að vera undir 4-2 á 89. mínútu, gerir Jenas sér grein fyrir að liðið eigi erfitt verkefni fram undan. "Við erum enn í slæmri stöðu og við verðum að setja hjarta okkar og sál í hvern einasta leik."
Enski boltinn Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira