Geir sammála Þorgerði um Davíð 2. október 2008 22:43 Geir H. Haarde.
Geir H. Haarde, forsætisráðherra, segir að það liggi fyrir að embættismenn séu ekki aðilar að stjórnarmyndun. Forsætisráðherra var spurður í seinnifréttum Ríkissjónvarpsins í kvöld hvort hann væri sammála Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, varaformanni Sjálfstæðisflokksins, að Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, væri kominn langt út fyrir verksvið sitt þegar hann tali fyrir myndun þjóðstjórnar. ,,Hann var nú ekki að viðra hugmyndir um þjóðstjórn. Það er einhver misskilningur sem hefur komist á kreik. En auðvitað er það ekki hans mál. Það er mál stjórnmálaflokkanna. Ég tel ekki að hann hafi verið að reyna að seilast þangað inn með því sem hann kann að hafa látið út úr sér," segir Geir. Fréttablaðið greindi frá því í dag að Davíð Oddsson seðlabankastjóri hafi sagt að ástandið í efnahagsmálum sé svo alvarlegt að ástæða sé til að koma á þjóðstjórn. Þorgerður sagði í samtali við Vísi í dag að með ummælum sínum sé seðlabankastjóri kominn langt út fyrir sitt verksvið. „Ég tel rétt að seðlabankastjóri einbeiti sér að þeim ærnu verkefnum sem Seðlabankinn þarf að takast á við en láti stjórnmálamönnum eftir stjórn landsins."
Tengdar fréttir Hugmyndir Davíðs um þjóðstjórn hafa enga þýðingu Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, segir ríkisstjórnina ekki sitja með hendur í skauti í því erfiða efnahagsástandi sem nú dynur á þjóðinni. Hann segir hugmyndir Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra um þjóðstjórn hugmyndir manns út í bæ sem ekki hafi þýðingu á hinum pólitíska vettvangi. 2. október 2008 12:03 Þorgerður skammar Davíð „Ég tel rétt að seðlabankastjóri einbeiti sér að þeim ærnu verkefnum sem Seðlabankinn þarf að takast á við en láti stjórnmálamönnum eftir stjórn landsins,” segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins. 2. október 2008 15:30 „Er Davíð Oddsson ekki hættur í stjórnmálum?“ Guðni Ágústsson formaður Framsóknarflokksins segir Davíð Oddsson ekki hafa rætt hugmyndir um þjóðstjórn við sig. Hann segist sjálfur hafa sett fram hugmyndir um þjóðarsátt fyrir ári síðan og muni ekki skorast undan ábyrgð verði leitað til hans með hugmyndina eins og hann setti hana fram. 2. október 2008 12:19 Hefur ekki rætt hugmyndir um þjóðstjórn Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna vill lítið tjá sig um hugmyndir Davíðs Oddssonar um að hér þurfi að koma á fót þjóðstjórn. Hann segir hugmyndirnar þó undirstrika að ástandið sé alvarlegt og ekki sé skrýtið að svoleiðis komi upp. Fréttablaðið segist hafa heimildir fyrir því á forsíðu í morgun að Davíð hafi tvisvar viðrað þessa hugmynd sína undanfarið. 2. október 2008 10:27 Enginn tilgangur með þjóðstjórn „Við erum með ríkisstjórn sem er með mjög styrkan þingmeirihluta og ég sé ekki fyrir mér að þjóðstjórn geti skilað einhverju umfram þá stjórn sem situr í dag," segir Einar Mar Þórðarson stjórnmálafræðingur. 2. október 2008 10:33 Mest lesið Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Erlent Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Innlent Algjörlega óásættanleg staða Innlent Davos-vaktin: „Við fengum allt sem við vildum“ Erlent Hættu við lendingu í miðju aðflugi Innlent „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Erlent Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Innlent Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Innlent Var á ráðstefnunni í Davos: „Fólk andaði kannski aðeins léttar“ Erlent Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Innlent Fleiri fréttir Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Algjörlega óásættanleg staða Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Þjóðaröryggisráð boðað til fundar Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Formaður Sjálfstæðisflokksins fer yfir þunga stöðu Hættu við lendingu í miðju aðflugi Taldi sig mega birta nektarmyndir af fyrrverandi en dómarinn hélt ekki Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Drógu dauðan hval lengst út í hafsauga Segir gagnrýni minnihlutans til þess gerða að dreifa athygli Nú má heita Friðálv Gletting Lucíuson Náðu sex byssum úr byssuskáp á Akureyri Parísarheimsókn fjárlaganefndar „mjög fróðleg“ Með 29 kíló af maríjúana í töskunum Brúnni yfir Helluvatn lokað í fimm vikur Stjórnarformaður Vélfags handtekinn í aðgerðum saksóknara „Það er ekki laust við að það fari um mann“ Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu Milljarða útspil meirihlutans „fullkomlega ábyrgðarlaust“ og lykti af prófkjörsbaráttu Ákærður fyrir nauðgun á nýársdag Markverð tíðindi í nýrri Maskínukönnun um fylgið á landsvísu Hátt í tíu þúsund manns án atvinnu í desember Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Sjá meira
Hugmyndir Davíðs um þjóðstjórn hafa enga þýðingu Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, segir ríkisstjórnina ekki sitja með hendur í skauti í því erfiða efnahagsástandi sem nú dynur á þjóðinni. Hann segir hugmyndir Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra um þjóðstjórn hugmyndir manns út í bæ sem ekki hafi þýðingu á hinum pólitíska vettvangi. 2. október 2008 12:03
Þorgerður skammar Davíð „Ég tel rétt að seðlabankastjóri einbeiti sér að þeim ærnu verkefnum sem Seðlabankinn þarf að takast á við en láti stjórnmálamönnum eftir stjórn landsins,” segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins. 2. október 2008 15:30
„Er Davíð Oddsson ekki hættur í stjórnmálum?“ Guðni Ágústsson formaður Framsóknarflokksins segir Davíð Oddsson ekki hafa rætt hugmyndir um þjóðstjórn við sig. Hann segist sjálfur hafa sett fram hugmyndir um þjóðarsátt fyrir ári síðan og muni ekki skorast undan ábyrgð verði leitað til hans með hugmyndina eins og hann setti hana fram. 2. október 2008 12:19
Hefur ekki rætt hugmyndir um þjóðstjórn Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna vill lítið tjá sig um hugmyndir Davíðs Oddssonar um að hér þurfi að koma á fót þjóðstjórn. Hann segir hugmyndirnar þó undirstrika að ástandið sé alvarlegt og ekki sé skrýtið að svoleiðis komi upp. Fréttablaðið segist hafa heimildir fyrir því á forsíðu í morgun að Davíð hafi tvisvar viðrað þessa hugmynd sína undanfarið. 2. október 2008 10:27
Enginn tilgangur með þjóðstjórn „Við erum með ríkisstjórn sem er með mjög styrkan þingmeirihluta og ég sé ekki fyrir mér að þjóðstjórn geti skilað einhverju umfram þá stjórn sem situr í dag," segir Einar Mar Þórðarson stjórnmálafræðingur. 2. október 2008 10:33