Ian Wright gerir upp tímabilið Elvar Geir Magnússon skrifar 6. maí 2008 21:00 Ian Wright.
Breska blaðið The Sun fékk markahrókinn fyrrverandi Ian Wright til að gera upp tímabilið í ensku úrvalsdeildinni. Lokaumferðin verður leikin um næstu helgi. Hér að neðan má sjá val Ian Wright í hinum ýmsu flokkum. Knattspyrnustjóri ársins: Harry Redknapp„Ég hefði viljað sjá enska knattspyrnusambandið ræða við Redknapp þegar það leitaði að næsta landsliðsþjálfara. Hann hefur aldrei fengið það hrós sem hann á skilið. Ég veit af eigin reynslu hve frábær knattspyrnustjóri hann er eftir að hafa leikið undir hans stjórn hjá West Ham." Heimskasti eigandi ársins: Tom Hicks„Sífellt fleiri lið eru að komast í eigu manna sem hafa enga tilfinningu fyrir leiknum. Hicks hjá Liverpool fær þó þessi verðlaun fyrir að hafa haft slæm áhrif bæði innan og utan vallarins." Mark tímabilsins: Emmanuel Adebayor„Annað markið frá Adebayor í 3-1 sigri gegn Tottenham í september. Hann sýndi frábæra tækni þegar hann átti ótrúlegt skot framhjá Paul Robinson í marki Tottenham." Leikmaður ársins: Cristiano Ronaldo„Er nálægt því að ná sömu hæðum í vinsældum á Old Trafford og David Beckham. Ef hann heldur áfram á sömu braut verður hann meiri United-goðsögn en sjálfur Eric Cantona." Ungi leikmaður ársins: Enginn„Það eru of fáir unglingar að spila í ensku úrvalsdeildinni því þeim er ekki sýnt traust. Stjórarnir vilja frekar notast við erlenda leikmenn. Cesc Fabregas fékk þessi verðlaun en sá spænski er orðinn 21. árs." Slakasti leikmaður ársins: Rolando Bianchi„Kom til Manchester City frá Reggina í júlí fyrir 8,8 milljónir punda. Lék aðeins sjö leiki í byrjunarliði í úrvalsdeildinni áður en hann var lánaður til Lazio. Sven Göran Eriksson hefur gert góða hluti hjá City og á ekki skilið að fá þá meðhöndlun sem hann hefur fengið. Hann gerði samt mikil mistök með kaupum á Bianchi." Fáránlegasta starf ársins: Aðstoðardómarar„Það er ekki flókið starf að vera aðstoðardómari. Samt gera þeir fullt af mistökum. Mér finnst að það ætti að velja áhorfendur sem koma á völlinn í þetta hlutverk. Þeir myndu gera þetta betur." Persónuleiki ársins: David James„Allir sem þekkja James vita hve frábær persónuleiki hann er. Hann hefur þurft að þola mikla gagnrýni en alltaf svarað á vellinum. Hann er alltaf brosandi, mjög jákvæður og frábær markvörður. Ég vildi að það væru fleiri eins og hann í fótboltanum."
Enski boltinn Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Sport Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Handbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira