Enski boltinn

Viðtöl hjá West Ham halda áfram í dag

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gianfranco Zola - næsti stjóri West Ham?
Gianfranco Zola - næsti stjóri West Ham? Nordic Photos / Getty Images

Forráðamenn West Ham munu í dag halda áfram starfsviðtölum vegna stöðu knattspyrnustjóra hjá félaginu.

Samkvæmt enskum fjölmiðlum þykir Gianfranco Zola langlíklegastur til að hreppa hnossið en heimildir Vísis herma að fleiri en hann komi til greina. Roberto Donadoni hefur einnig verið nefndur í sögunnar.

Skoski þjálfarinn John Collins hefur einnig þótt koma vel fyrir í sínu starfsviðtali og kemur enn til greina. Hann var stjóri Hibernian í heimalandi sínu þar til í desember í fyrra.

Margir aðrir hafa verið orðaðir við starfið en þykja ekki lengur koma til greina, svo sem Slaven Bilic og Michael Laudrup.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×