Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari hefur tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir æfingaleikinn gegn Færeyingum í Kórnum í Kópavogi klukkan 16 í dag.
Liðið er að miklu skipað leikmönnum frá Íslandsmeisturum Vals, en sex Valsarar eru í byrjunarliðinu.
Byrjunarliðið(4-5-1):
Markvörður:Kjartan Sturluson (Val)
Varnarmenn:
Birkir Már Sævarsson (Val), Bjarni Ólafur Eiríksson (Val), Atli Sveinn Þórarinsson, fyrirliði (Val), Heimir Einarsson (ÍA).
Miðjumenn:
Jónas Guðni Sævarsson (KR), Aron Einar Gunnarsson (AZ Alkmaar), Davíð Þór Viðarsson (FH), Baldur Aðalsteinsson (Val), Tryggvi Guðmundsson (FH).
Framherji:
Helgi Sigurðsson (Val).