Enski boltinn

Sektaður fyrir að fara á súlustað

NordicPhotos/GettyImages

Norski framherjinn John Carew hjá Aston Villa hefur fengið háa sekt frá félaginu eftir að hafa stolist til að fara á súlustað í síðustu viku.

Markaskorarinn var fyrir vikið settur út úr liðinu fyrir Evrópuleikinn gegn Ajax á fimmtudaginn, en kom inn af bekknum í sigri á Wigan í gær þar sem hann náði að skora mark.

Martin O´Neill, stjóri Villa, náði að sjá skondnu hliðina á málinu þó hann hafi ávítað norska framherjann.

"John var sektaður fyrir að brjóta reglur og málið er úr sögunni. Hann hefur lofað að gera þetta ekki aftur. Ég talaði um að það væri mikill aldursmunur á okkur og að ég vildi að ég væri á hans aldri. Ég átti það til að fara svona út á lífið sjálfur, en þá voru svona staðir ekki kallaðir súlustaðir," sagði O´Neill.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×