Innlent

Ísland stendur sterkt þrátt fyrir að hafa ekki náð kjöri

Geir H. Haarde forsætisráðherra og Yves Leterme, forsætisráðherra Belgíu, svara spurningum fréttamanna.
Geir H. Haarde forsætisráðherra og Yves Leterme, forsætisráðherra Belgíu, svara spurningum fréttamanna.

Geir H. Haarde forsætisráðherra segir Ísland standi sterkt þrátt fyrir að landið hafi ekki náð kjöri í öryggisráð Sameinuðu þjóðanna í dag. Geir ræddi við blaðamenn eftir fund sinn með Yves Leterme, forsætisráðherra Belgíu, þar sem efnahagserfiðleikarnir á Íslandi voru til umræðu og möguleg aðstoð Belga.

Geir sagði að það væru vissulega vonbrigði að Íslendingar hefðu ekki náð kjöri í öryggisráðið en að landið stæði sterkt eftir því unnið hefði verið vel að framboðinu og Ísland hefði verið mikið í sviðsljósinu um allan heim.

Hann taldi ekki að þeim peningum hefði verið illa varið sem farið hefðu í framboðið enda væru það smáar upphæðir hlutfallslega miðað við það sem aðrar þjóðir hefðu lagt í framboðið. Um það hvort Ísland myndi sækjast aftur eftir sæti í öryggisráðinu sagði Geir að það væri hefð fyrir því að norrænu þjóðirnar sæktust eftir sæti á fjögurra ára fresti og skiptust þannig á. Það kæmi því ekki að Íslandi aftur fyrr eftir 20 ár og sagðist hann að það yrði líklega ekki í hans verkahring að taka ákvörðun þar um.

Um viðræðurnar við Leterme sagði Geir að þær hefðu verið vinsamlegar en engar ákvarðanir hefðu verið teknar á fundinum. Leterme sagði að Evrópusambandið styddi heilshugar aðgerðir íslenskra stjórnvalda í efnahagserfiðleikunum og væri boðið og búið til þess að gera það sem í þess valdi stæði til að auðvelda Íslendingum baráttuna.






Tengdar fréttir

Markmið með setu í Öryggisráðinu óljós

Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstri grænna, segist vonast til þess að utanríkisþjónusta Íslendinga geti einbeitt sér að koma samskiptum við Breta í betra horf og stjórnvöld geti komið gjaldeyrismálum í lag nú þegar kosningabaráttan um Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna er frá.

Hefðum verið sterkari með sigri

Guðni Ágústsson formaður Framsóknarflokksins segir niðurstöðu kosninga um sæti í Öryggisráð Sþ ekki koma sér á óvart. Eins og Vísir hefur greint frá höfnuðu Íslendingar í þriðja sæti í kosningu um sæti í Öryggisráðinu fyrir stundu og náðu því ekki kjöri.

Ýmsar þjóðir sem höfðu lofað stuðningi sneru við okkur baki

Ingibjörg Sólrún Gíslasdóttir utanríkisráðherra segir það mikil vonbrigði að Ísland hafi ekki náð kjöri í Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Ísland hlaut aðeins 87 atkvæði kosningunum í New York í dag en Austurríkismenn og Tyrkir tryggðu sér sæti Vestur-Evrópu í ráðinu.

Ísland ekki í öryggisráðið

Ísland fær ekki sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna árin 2009 til 2010. Þetta kom í ljós við atkvæðagreiðslu á allsherjarþinginu fyrir stundu.

Ekki var staðið við gefin loforð

Árni Páll Árnason, varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis, segir ljóst að gefin loforð um stuðning við framboð Íslendinga til öryggisráðsráðs Sameinuðu þjóðanna hafi ekki haldið. Hann telur ljóst að gjörningaveður undafarinna vikna hafi haft áhrif á framboð Íslands. ,,En það kemur dagur eftir þennan dag."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×