Ísland stendur sterkt þrátt fyrir að hafa ekki náð kjöri 17. október 2008 17:49 Geir H. Haarde forsætisráðherra og Yves Leterme, forsætisráðherra Belgíu, svara spurningum fréttamanna.
Geir H. Haarde forsætisráðherra segir Ísland standi sterkt þrátt fyrir að landið hafi ekki náð kjöri í öryggisráð Sameinuðu þjóðanna í dag. Geir ræddi við blaðamenn eftir fund sinn með Yves Leterme, forsætisráðherra Belgíu, þar sem efnahagserfiðleikarnir á Íslandi voru til umræðu og möguleg aðstoð Belga. Geir sagði að það væru vissulega vonbrigði að Íslendingar hefðu ekki náð kjöri í öryggisráðið en að landið stæði sterkt eftir því unnið hefði verið vel að framboðinu og Ísland hefði verið mikið í sviðsljósinu um allan heim. Hann taldi ekki að þeim peningum hefði verið illa varið sem farið hefðu í framboðið enda væru það smáar upphæðir hlutfallslega miðað við það sem aðrar þjóðir hefðu lagt í framboðið. Um það hvort Ísland myndi sækjast aftur eftir sæti í öryggisráðinu sagði Geir að það væri hefð fyrir því að norrænu þjóðirnar sæktust eftir sæti á fjögurra ára fresti og skiptust þannig á. Það kæmi því ekki að Íslandi aftur fyrr eftir 20 ár og sagðist hann að það yrði líklega ekki í hans verkahring að taka ákvörðun þar um. Um viðræðurnar við Leterme sagði Geir að þær hefðu verið vinsamlegar en engar ákvarðanir hefðu verið teknar á fundinum. Leterme sagði að Evrópusambandið styddi heilshugar aðgerðir íslenskra stjórnvalda í efnahagserfiðleikunum og væri boðið og búið til þess að gera það sem í þess valdi stæði til að auðvelda Íslendingum baráttuna.
Tengdar fréttir Markmið með setu í Öryggisráðinu óljós Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstri grænna, segist vonast til þess að utanríkisþjónusta Íslendinga geti einbeitt sér að koma samskiptum við Breta í betra horf og stjórnvöld geti komið gjaldeyrismálum í lag nú þegar kosningabaráttan um Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna er frá. 17. október 2008 17:23 Hefðum verið sterkari með sigri Guðni Ágústsson formaður Framsóknarflokksins segir niðurstöðu kosninga um sæti í Öryggisráð Sþ ekki koma sér á óvart. Eins og Vísir hefur greint frá höfnuðu Íslendingar í þriðja sæti í kosningu um sæti í Öryggisráðinu fyrir stundu og náðu því ekki kjöri. 17. október 2008 16:36 Ýmsar þjóðir sem höfðu lofað stuðningi sneru við okkur baki Ingibjörg Sólrún Gíslasdóttir utanríkisráðherra segir það mikil vonbrigði að Ísland hafi ekki náð kjöri í Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Ísland hlaut aðeins 87 atkvæði kosningunum í New York í dag en Austurríkismenn og Tyrkir tryggðu sér sæti Vestur-Evrópu í ráðinu. 17. október 2008 16:30 Ísland ekki í öryggisráðið Ísland fær ekki sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna árin 2009 til 2010. Þetta kom í ljós við atkvæðagreiðslu á allsherjarþinginu fyrir stundu. 17. október 2008 15:38 Ekki var staðið við gefin loforð Árni Páll Árnason, varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis, segir ljóst að gefin loforð um stuðning við framboð Íslendinga til öryggisráðsráðs Sameinuðu þjóðanna hafi ekki haldið. Hann telur ljóst að gjörningaveður undafarinna vikna hafi haft áhrif á framboð Íslands. ,,En það kemur dagur eftir þennan dag." 17. október 2008 16:11 Mest lesið Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Innlent Davos-vaktin: Beðið eftir ræðu Trumps Erlent Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu Innlent Vél Trump snúið við en ræðan enn á dagskrá Erlent Stjórnarformaður Vélfags handtekinn í aðgerðum saksóknara Innlent Hvað býr bakvið sólgleraugu Macron? Erlent Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Innlent „Það er ekki laust við að það fari um mann“ Innlent Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Eldræða Carney: „Ef þú ert ekki við borðið þá ertu á matseðlinum“ Erlent Fleiri fréttir Með 29 kíló af maríjúana í töskunum Brúnni yfir Helluvatn lokað í fimm vikur Stjórnarformaður Vélfags handtekinn í aðgerðum saksóknara „Það er ekki laust við að það fari um mann“ Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu Milljarða útspil meirihlutans „fullkomlega ábyrgðarlaust“ og lykti af prófkjörsbaráttu Ákærður fyrir nauðgun á nýársdag Markverð tíðindi í nýrri Maskínukönnun um fylgið á landsvísu Hátt í tíu þúsund manns án atvinnu í desember Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Annasamasti dagur á bráðamóttöku í lækna minnum Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Gríðarleg fjölgun hótana og dæmi um að setið sé fyrir lögreglumönnum Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Ofbeldi gegn lögreglumönnum magnast og baráttan hafin um Framsókn Nemi í jarðfræði hlaut Nýsköpunarverðlaunin „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Brynjar skýtur föstum skotum á Flokk fólksins „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Sjá meira
Markmið með setu í Öryggisráðinu óljós Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstri grænna, segist vonast til þess að utanríkisþjónusta Íslendinga geti einbeitt sér að koma samskiptum við Breta í betra horf og stjórnvöld geti komið gjaldeyrismálum í lag nú þegar kosningabaráttan um Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna er frá. 17. október 2008 17:23
Hefðum verið sterkari með sigri Guðni Ágústsson formaður Framsóknarflokksins segir niðurstöðu kosninga um sæti í Öryggisráð Sþ ekki koma sér á óvart. Eins og Vísir hefur greint frá höfnuðu Íslendingar í þriðja sæti í kosningu um sæti í Öryggisráðinu fyrir stundu og náðu því ekki kjöri. 17. október 2008 16:36
Ýmsar þjóðir sem höfðu lofað stuðningi sneru við okkur baki Ingibjörg Sólrún Gíslasdóttir utanríkisráðherra segir það mikil vonbrigði að Ísland hafi ekki náð kjöri í Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Ísland hlaut aðeins 87 atkvæði kosningunum í New York í dag en Austurríkismenn og Tyrkir tryggðu sér sæti Vestur-Evrópu í ráðinu. 17. október 2008 16:30
Ísland ekki í öryggisráðið Ísland fær ekki sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna árin 2009 til 2010. Þetta kom í ljós við atkvæðagreiðslu á allsherjarþinginu fyrir stundu. 17. október 2008 15:38
Ekki var staðið við gefin loforð Árni Páll Árnason, varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis, segir ljóst að gefin loforð um stuðning við framboð Íslendinga til öryggisráðsráðs Sameinuðu þjóðanna hafi ekki haldið. Hann telur ljóst að gjörningaveður undafarinna vikna hafi haft áhrif á framboð Íslands. ,,En það kemur dagur eftir þennan dag." 17. október 2008 16:11