Enski boltinn

Tottenham úr fallsæti

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Darren Bent fagnar öðru marka sinna í dag.
Darren Bent fagnar öðru marka sinna í dag. Nordic Photos / Getty Images

Tottenham tókst í dag að lyfta sér úr botnsæti ensku úrvalsdeildarinnar og upp í það fimmtánda eftir 2-1 sigur á Manchester City á útivelli í dag.

Þegar Juande Ramos var rekinn frá Tottenham var liðið með tvö stig en Tottenham hefur nú fengið tíu stig af tólf mögulegum síðan að Harry Redknapp tók við. Liðið vann í dag sinn þriðja sigur í röð og er á hraðferð upp stigatöfluna.

Tottenham byrjaði betur í leiknum en það var City sem skoraði fyrsta markið úr nánast sinni fyrstu sókn í leiknum. Darius Vassell átti skot að marki sem Heurelho Gomes varði en boltinn féll beint fyrir fætur Robinho sem skoraði af öryggi.

Markið kom á 16. mínútu og tíu mínútum síðan var Gelson Fernandes rekinn af velli í liði City fyrir sína aðra áminningu á átta mínútum. Fyrst fyrir óíþróttamannslega framkomu og svo fyrir tæklingu á David Bentley.

Tottenham var ekki nema þrjár mínútur að færa sér liðsmuninn í nyt og jafnaði Darren Bent metin á 29. mínútu. Richard Dunne missti boltann klaufalega framhjá sér og var Bent þar mættur til að hirða boltann og skora.

Hann var svo aftur á ferðinni á 64. mínútu með glæsilegu skoti úr erfiðri stöðu sem fór í stöngina og inn. Hann skoraði þrennu í Evrópuleik í vikunni og hefur nú skorað tíu mörk í fimmtán leikjum með Tottenham í öllum keppnum.

Dunne fékk svo að líta beint rautt spjald fyrir brot á Darren Bent undir lok leiksins og lauk því City leiknum með aðeins níu leikmenn á vellinum. Hins vegar fékk Benoit Assou-Ekotto, leikmaður Tottenham, einnig að líta rauða spjaldið í lokin og fengu því alls þrír leikmenn að fjúka út af í leiknum.

Þá gerðu vann Middlesbrough góðan sigur á Aston Villa á útivelli, 2-1.

Tuncay kom Middlesbrough yfir á 34. mínútu eftir sendingu Stewart Downing en Steve Sidwell jafnaði metin fyrir Aston Villa með skalla aðeins þremur mínútum síðar. En Tuncay var aftur á ferðinni undir lok leiksins. Sidwell ætlaði að senda boltann á markvörð Villa en boltinn fór beint á Tuncay sem átti ekki í vandræðum með að skora.

Aston Villa er í fimmta sæti deildarinnar með 20 stig en þetta var fyrsta tap liðsins á heimavelli í vetur. Middlesbrough er í áttunda sæti deildarinnar með sautján stig og Manchester City er í tólfta sæti með þrettán stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×