Lán til Orkuveitunnar frosin 30. desember 2008 12:15 Guðlaugur Sverrisson.
Evrópskir bankar neita að afgreiða lán til Orkuveitu Reykjavíkur fyrr en ástandið lagast á Íslandi. Stjórnarformaður Orkuveitunnar segir að besti möguleikinn í spilunum til að höggva á hnútinn sé að koma álversframvæmdum í gang í Helguvík. Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti í gær að endurnýja raforkusamning við Norðurál vegna fyrirhugaðs álvers í Helguvík. Samningurinn var samþykktur með fjórum atkvæðum gegn einu mótatkvæði fulltrúa Vinstri grænna en fulltrúi Samfylkingarinnar sat hjá við afgreiðslu málsins. Samningurinn er talinn hafa þýðingu fyrir lánsfjáröflun Norðuráls en Orkuveitan á einnig í vandræðum með að útvega sér lán til framkvæmda, að sögn Guðlaugs Sverrissonar stjórnarformanns. Hann segir Orkuveituna eiga útistandandi lánsloforð hjá Evrópska þróunarbankanum og Evrópska fjáarfestingarbankanum. Þau lán verði, að sögn bankanna, ekki afgreidd fyrr en ástandið lagast á Íslandi. Guðlaugur telur að Helguvíkurverkefnið sé í raun það eina í spilunum nú til að höggva á hnútinn. „Hafi einhver möguleika á að koma verkefnum af stað þá eru það Norðurálsmenn, að mínu mati, miðað við alla þá aðila sem við höfum rætt við," segir Guðlaugur. Hann kveðst vongóður um að þetta takist hjá þeim og það komi þá í ljós fljótlega á næsta ári hvort þessir samningar við banka í Evrópu gangi eftir. „Þeir eru vongóðir og við líka," segir hann. Stjórnarformaður Orkuveitunnar segir að þetta verkefni geti skapað nokkur þúsund störf í landinu. Það gæti orðið til þess að Orkuveitan færi í Hverahlíðarvirkjun. Þetta myndi þýða störf á Suðurnesjum fyrir 4-5 þúsund manns, ef allt gengi eftir.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Fleiri fréttir Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjá meira