Erlent

Lítill árangur á fundum Suu Kiy og stjórnvalda í Búrma

Stjórnarandstöðuleiðtoginn Aung San Suu Kyi í Búrma segir að lítið hafi komið út úr fundum með stjórnvöldum undanfarna mánuði.

Sendimenn Sameinuðu þjóðanna hafa reynt að fá herstjórnina í Búrma til að ræða við stjórnarandstöðuna en Suu Kyi segist ekki merkja neina viðleitni til sátta.

Hún ræddi við dómsmálaráðherra landsins í dag en sagðist eftir fundinn vera ósátt með afstöðu stjórnvalda. Þau hefðu engar tillögur um framhald viðræðna, og þó að Suu Kyi vonaði hið besta þá gerði hún ráð fyrir því versta. Nú eru fjórir mánuðir síðan stjórnvöld börðu niður mótmæli Búddamunka í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×