Loksins sigraði Romney 16. janúar 2008 07:29 MYND/AFP
Fréttaskýrendur eru farnir að líkja forkosningunum í Bandaríkjunum sem rússibanaferð þar sem allt getur gerst. Og nú var komið að Mitt Romney sem vann forkosningar Repúblikana í Michigan nokkuð örugglega. Hillary Clinton vann táknrænan sigur Demókrata, en keppinautar hennar drógu nöfn sín til baka úr forkosningunni eftir að demókrataflokkurinn sagði að niðurstöður yrðu ekki virtar í refsingarskyni við Michiganríki, sem færði dagsetningu kosninganna fram á dagatalinu. Mitt Romney stefnir að því að verða fyrsti mormóninn í sögunni sem kosinn er forseti Bandaríkjanna og hann þurfti sárlega á sigri í Michigan að halda. Sigur hans var nokkuð öruggur þegar upp var staðið, Romney hlaut 39% atkvæða. Næstur kom John McCain með 30% og Mike Huckabee varð þriðji með 16% atkvæða. Það hjálpaði Romney mikið að hann var svo gott sem á heimavelli í Michigan, er fæddur og uppalinn þar og er fyrrum ríkisstjóri í nágrannafylkinu Massachussetts. Romney hefur eytt gífurlegum fjárhæðum í baráttu sinni og ef hann hefði ekki náð sigri í Michigan voru fréttaskýrendur á einu máli um að baráttunni væri lokið hjá honum. Eftir sigur sinn í nótt sagði Mitt Romney við stuðningsmenn sína að þetta væri upphafið að endurkomu hans í baráttuna við að verða valinn forsetaefni Repúblikanaflokksins. Sigur Romney þýðir að nú er allt opið og erfitt að spá um hver sé líklegastur til að standa uppi sem sigurvegari. Og nefnt er sem dæmi að þungaviktarmaðurinn Rudy Guliani, fyrrum borgarstjóri New York borgar hefur enn ekki hafið sína baráttu af krafti. Það gerir hann fyrst í Flórída undir lok mánaðarins.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Erlent Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Erlent Fleiri fréttir Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda Sjá meira