Erlent

Árás á sendiráð Ísraela í Máritaníu

Sex vopnaðir menn réðust á sendiráð Ísraels í Máritaníu á vesturströnd Afríku snemma í morgun. Nokkrir liggja sárir eftir árásina en ekki hafa borist fregnir um mannfall.

Lögreglan hefur girt af svæðið í kringum sendiráðið sem er í höfuðborg landsins. Yfirvöld telja að meðlimir al-kaída hafi verið hér að verki en um jólin í fyrra voru fjórir Frakkar myrtir í svipaðri árás og var það þess valdandi að hætt var við Dakar rallið en leið þess liggur um landið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×