Helgin á Englandi - Myndir Elvar Geir Magnússon skrifar 27. október 2008 17:32
Liverpool trjónir á toppi úrvalsdeildarinnar eftir góðan sigur á Chelsea í gær. Tottenham byrjaði vel undir stjórn Harry Redknapp og Hull heldur áfram á sigurbraut. Ljósmyndarar Getty Images voru á öllum leikjum helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni og með því að smella á myndaalbúmið hér að neðan má rifja upp helgina í máli og myndum. Liverpool er heldur betur á beinu brautinni og vann Chelsea 1-0 á útivelli í stórleik helgarinnar. Hér fagna liðsmenn Liverpool marki Xabi Alonso.Alvaro Arbeloa og Florent Malouda í baráttunni í toppslagnum.Robinho var á flugi og skoraði öll þrjú mörk Manchester City í 3-0 sigri á Stoke.Joe Jordan og Tony Adams stýrðu Portsmouth í 1-1 jafntefli gegn Fulham. Sæti Harry Redknapp var hinsvegar autt enda hann horfinn á braut til Tottenham.Vel var tekið á móti Harry Redknapp á White Hart Lane. Redknapp tók við stjórnartaumunum hjá Tottenham á laugardag og var mættur til að stýra liðinu gegn Bolton.Tottenham fékk óskabyrjun undir stjórn Harry Redknapp og vann Bolton 2-0. Darren Bent og David Bentley fagna hér marki hins fyrrnefnda.Það tók Arsenal 75 mínútur að ná að brjóta West Ham á bak aftur. Það þurfti sjálfsmark frá Faubert til. Adebayor bætti síðan öðru marki við í viðbótartíma og Arsenal vann 2-0 á Upton Park.Benni McCarthy skorar hér jöfnunarmark Blackburn í leik gegn Middlesbrough. Markið kom undir blálok leiksins og úrslitin 1-1.Aston Villa kafsigldi Wigan. Oliver Kapo og Gabriel Agbonlahor eru hér í baráttunni.Everton og Manchester United gerðu jafntefli. Phil Neville lét finna fyrir sér gegn sínum fyrrum samherjum.Sunderland vann granna sína í Newcastle 2-1 við mikinn fögnuð stuðningsmanna sinna. Joey Barton var mættur í baráttuna hjá Newcastle. Hér má einnig sjá Kieran Richardson sem skoraði sigurmark Sunderland með glæsilegri aukaspyrnu.Hið ótrúlega lið Hull heldur áfram að vinna leiki en það fór létt með West Brom um helgina. Phil Brown hefur verið að gera kraftaverk með Hull.
Enski boltinn Mest lesið Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Enski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Íslenski boltinn Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira