Störe slapp með skrekkinn - Tveir Norðmenn særðust 14. janúar 2008 19:24
Tveir Norðmenn í fylgdarliði norska utanríkisráðherrans særðust í sprengjuárás á hótel í Kabúl í Afganistan nú síðdegis. Ráðherrann var staddur á hótelinu þegar ráðist var á það en hann er óskaddaður. Jonas Gahr Störe utanríkisráðherra Noregs var á Serena hótelinu þegar fjórir menn réðust til inngöngu með handsprengjum og byssuskothríð. Þeir komust framhjá vörðum með því að fella alls fjóra menn, fóru inn á hótellóðina og þar sprengdu tveir þeirra sig í loft upp. Blaðamaður norska Dagblaðsins og starfsmaður norska utanríkisráðuneytisins særðust báðir alvarlega. Þeir voru fluttir á tékkneskt hersjúkrahús á Kabúl flugvelli og nú rétt fyrir fréttir var Störe utanríkisráðherra á leið til þeirra. Farið var með Störe niður í kjallara hótelsins á meðan beðið var eftir hersveitum á staðinn. Bandarískir hermenn umkringdu hótelið. Talibanar sendu í fyrra 140 sjálfsvígssprengjumenn til árása í Afganistan. Norðmenn eru með fimm hundruð hermenn í Afganistan. Talsmaður íslensku friðargæslunnar segir að engir Íslendingar hafi verið á hótelinu þegar árásin var gerð. Alls eru þrettán Íslendingar á vegum friðargæslunnar í störfum hjá Atlantshafsbandalaginu í Afganistan.
Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Innlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Innlent Fleiri fréttir Ísrael sprengir í Sýrlandi: Þrír látnir og tugir særðir Fimm glæpamenn fluttir frá Bandaríkjunum til Esvatíní Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Pútín lætur sér fátt um finnast Ekkja Navalní mótmælir tónleikum „náins vinar“ Pútín Leynd aflétt af leynilegri áætlun um móttöku Afgana Fyrirætlanir um búðir í Rafah vekja ágreining Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Hótar Pútín með tollum ef friður næst ekki á fimmtíu dögum Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart „Tæknivilla“ hafi valdið árás á fólk sem var að sækja sér vatn Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Gisèle Pelicot sæmd æðstu heiðursorðu Frakka Hvetja foreldra til að bólusetja börnin sín eftir andlát vegna mislinga Reyna aftur að sigla til Gasa Veita yfirráðasvæði Frakklands meira sjálfstæði Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Sjá meira