Pavlyuchenko finnst æfingarnar erfiðar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. september 2008 13:30 Roman Pavlyuchenko í leik með Tottenham. Nordic Photos / Getty Images
Roman Pavlyuchenko segist aldrei hafa búast við jafn erfiðum æfingum og hann hefur mátt þola hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Tottenham. Pavlyuchenko kom til Tottenham frá Spartak Moskvu á lokadegi félagaskiptagluggans um síðustu mánaðamót. Þá var hálft ár liðið frá því að tímabilið í Rússlandi hófst auk þess sem hann spilaði með rússneska landsliðinu á EM í sumar. Hann hefur nú spilað í tveimur leikjum með Tottenham og var tekinn af velli í hálfleik gegn Wigan um helgina. Pavlyuchenko segir að það sem hafi komið sér mest á óvart við dvölina hjá Tottenham eru stífar og strangar æfingar hjá félaginu. „Þegar það er vika á milli leikja eru æfingarnar virkilega erfiðar. Ég rétt komst í gegnum þær fyrst þegar ég kom." „Ég leit eitt sinn á klukkuna og sá að æfingin hafði staðið yfir í tvo klukkutíma. Svo tók við hálftími í tækjasalnum! Tveir og hálfur tími! Geturðu ímyndað þér?" „Ég hef aldrei lent í öðru eins á mínum ferli. Lóðin fóru að verða of þung og ég varð að stoppa og segja þjálfaranum að ég gæti ekki meira. Ég varð fyrir miklu áfalli. Ég hélt að þetta yrði miklu auðveldara."
Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Handbolti Víkingur Götu - Stjarnan 2-2 (3-5) | Gerðu nóg Fótbolti Vestri - Qarabag 0-3 | Úr leik í Evrópudeild en Lettland á næsta leiti Fótbolti Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Fleiri fréttir Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Sjá meira