Segir orkumálafrumvarp minna á Sovétríkin 28. febrúar 2008 17:31 MYND/GVA
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir nýtt orkumálafrumvarp iðnaðarráðherra miðstýringar- og ríkisvæðingarfrumvarp og minna á Sovétríkin. Iðnaðarráðherra sakaði hann um líkja sér við Pútín Rússlandsforseta. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra mælti fyrir frumvarpinu á Alþingi í dag. Markmið þess er að setja reglur um eignarhald auðlinda í opinberri eigu og skýra mörk samkeppnis- og sérleyfisþátta í starfsemi orkufyrirtækja. Það er gert til þess að tryggja að öll mikilverðustu vatns- og jarðhitaréttindi sem nú eru í eigu ríkis eða sveitarfélaga, beint eða óbeint, haldist áfram í eigu þessara aðila. Í frumvarpinu er einnig gert ráð fyrir að í þeim tilvikum þar sem starfsemi dreififyrirtækja og hitaveitna byggist á sérleyfum verði eignarhlutur opinberra aðila að minnsta kosti 2/3. Össur sagði á þingi í dag að með frumvarpinu væri verið að leggja til að eignarhald auðlindanna yrði eins og það væri í dag, í opinberri eigu, og þannig búið um hnúatana að möguleikar orkufyrirtækjanna til þess að nýta auðlindir sínar á ábyrgan hátt væru á engan hátt skertar. Pútín er með ríkisvædda orku Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði hér á ferðinni mikið miðstýringar- og ríkisvæðingarfrumvarp þar sem gert væri ráð fyrir að ríkið ætti allar auðlindir. Það minnti dálítið á Sovétríkin. Spurði hann ráðherra hvers vegna nýting auðlindanna væri betur komin í höndum ríkisins en einkaaðila og hvað ráðherra óttaðist ef einkaaðilar eignuðust orkuauðlindirnar. „Er það sama og Pútín er að beita Vestur-Evrópu, að hóta að skrúfa fyrir gasið. Þá vil ég minna á það að Pútín er með ríkisvædda orku og þess vegna getur hann hótað og beitt því pólitískt," sagði Pétur og sagði að slíkt gæti aldrei gerst ef auðlindir væru í eigu einkaaðila. Sagði hann allt eins hægt að opna ríkisrekna matvöruverslun og bensínstöðvar. Enginn formanna stjórnmálaflokkanna vill einkavæða auðlindir Össur Skarphéðinsson sagði hér um að ræða gæði sem væru eign þjóðarinnar og þorri hennar væri hlynntur þessu fyrirkomulagi. Það væri misskilningur að um ríkisvæðingu væri að ræða en Pétur hefði líkt honum við Pútín Rússlandsforseta. Þeir sem væru handhafar orkuauðlindanna gætu leyft afnot af þeim tímabundið samkvæmt frumvarpinu, þannig að allir Íslendingar ættu að fá réttinn til þess að nýta auðlindirnar. Þá vakti hann athygli á því að hver einasti formaður stjórnmálaflokks á Íslandi hefði lýst því yfir að ekki ætti að einkavæða auðlindirnar. Fyrsta umræða um frumvarpið er enn í gangi og búast má við að hún haldi eitthvað áfram því enn eru fimm manns á mælendaskrá.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Fækkar lögregluembættum Innlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Sjá meira