Velkominn til helvítis 28. október 2008 14:23 Tony Adams NordicPhotos/GettyImages
Tony Adams, nýráðinn stjóri Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni, segir að það hefði verið óðs manns æði að hafna tilboði um að taka við liðinu af Harry Redknapp. "Þetta er frábært og ég er upp með mér yfir því að vera sýndur þessi heiður," sagði Adams á blaðamannafundi nú áðan. "Ég hefði verið galinn að hafna þessu tilboði, ég er mjög spenntur og líður eins og séu komin jól. Þetta er samt mikil áhætta, því ég er að feta í stór fótspor," sagði Adams og vísaði til forvera síns Redknapp sem hafði náð góðum árangri með liðið. "Stundum er erfitt að taka við af svona mönnum. Hann stóð sig mjög vel. Ég hef hinsvegar úr góðum leikmönnum að moða hjá félaginu og ég átti þátt í að fá þá hingað. Ég vildi ekki að einhver annar fengi að stýra liðinu, það hefði verið áfall - og því vil ég þakka stjórninni fyrir að taka áhættu með því að leyfa mér að taka við," sagði Adams. Velkominn til helvítis Hann segist hafa ráðfært sig við fyrrum stjóra sinn hjá Arsenal, Arsene Wenger áður en hann tók við. "Þetta er næsta skref fyrir mig. Ég er tilbúinn. Ég talaði við Arsene og hann bauð mig velkominn til helvítis. Þá spurði ég hann hvort hann væri tilbúinn, því ég ætlaði að láta hann finna fyrir því," sagði Adams í léttum dúr. Hann var spurður út í þær vangaveltur að Harry Redknapp myndi nú reyna að fiska eitthvað af leikmönnum Portsmouth til sín hjá Tottenham. "Ég er tilbúinn að slást við hann um þá. Þetta eru góðir leikmenn og það er gott að þeir séu eftirsóttir, en það er undir mér komið að halda í þá," sagði Adams.
Enski boltinn Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira