Fidel Castro í framboði til þings á Kúbu 20. janúar 2008 16:09 Óljósar fregnir hafa borist af heilsu Castros en myndir af honum hafa aðeins birst í kúbönskum ríkisfjölmiðlum undanfarið eitt og hálft ár.
Fidel Castro, hinn aldni leiðtogi Kúbu, er meðal þeirra sem bjóða sig fram til þings í kosningum sem fram fara í landinu í dag. Þetta gerir hann þrátt fyrir að hann hafi ekki sést opinberlega í um eitt og hálft ár eða frá því að hann veiktist heiftarlega. Engin kosningarbarátta var heimiluð enda er Kommúnistaflokkurinn einn flokka í landinu. Þannig bjóða 614 manns sig fram til setu í 614 sæta þingi landsins en búist er við að kosningaþátttaka verði nálægt 90 prósentum. Óvissa hefur verið um það hvort Fidel Castro gegni áfram embætti forseta í landinu. Raul, bróðir hans, hefur haldið um stjórnartaumana frá því að Fidel veiktist. Forsetinn aldni hefur ýjað að því að kominn sé tími til að annar taki við völdum í landinu en hann hefur setið á forsetastóli á Kúbu í hartnær hálfa öld. Eftir þingkosningarnar mega líða 45 dagar þar til þingið kemur saman og velur forseta landsins og ríkisráð. Haft eftir Raul Castro að þingið komi saman þann 24. febrúar til þess að taka ákvörðun um hvort bróðir hans verði áfram forseti. Töluverð endurnýjun verður í þingliði Kúbu samkvæmt frétt breska ríkisútvarpisins. Hafði Kommúnistaflokkurinn hvatt yngra fólk til að bjóða sig fram. Nærri tveir þriðju frambjóðenda setjast nú á þing í fyrsta sinn og er meirihluti þeirra undir fimmtugu.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Erlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Fleiri fréttir Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Sjá meira